Fjarðarfréttir - 01.12.1985, Page 27

Fjarðarfréttir - 01.12.1985, Page 27
FJARÐARFRÉTTIR 27 Ef til vill á dálæti mitt á vatnslit- um einhverjar rætur að rekja til sýningar sem ég hélt á Kjarvalsstöð- um 1976. Þá sýndi ég 40-50 vatns- litamyndir, sem allar seldust, en olíumálverkin á sýningunni hreyfð- ust varla. Um þetta leyti, og allt frá dauða Ásgríms Jónssonar, var vatnslitamyndum litill gaumur gef- inn, en eftir þessa sýningu mína fóru þau að komast til vegs á ný. Mér finnst ég hafa átt stóran þátt i því með þessari sýningu. Það er með ólíkindum hve margar gerðir eru til af vatnslita- pappír og á þeim sviðum hef ég prófað margt. í seinni tíð, þegar efnin fóru að leyfa það, hef ég gert mér far um að nota dýrasta og vandaðasta pappír sem fáanlegur er, helst handunninn, franskan eða ítalskan. En hver gerð pappírs krefst sinnar sérstöku tækni. Ný- lega hreifst ég af alveg einstaklega fínum pappír og lét panta fyrir mig heil ósköp. En hvernig sem ég reyndi náði ég engum tökum á honum. Þrautaráðið var að leita eftir upplýsingum hjá framleiðend- unum í Frakklandi. Svarið sem ég fékk var einfalt: „Listamaðurinn verður sjálfur að finna út hvernig hann nær tökum á efninu!“ Nú var illt í efni. Þetta var rándýrt helvíti og ég varð að finna eitthvað út úr þessu sjálfur. Ég hélt því áfram að þreifa mig áfram með ærinni fyrir- höfn og loks tókst mér að ná taki á pappírnum. Til þess þurfti ég meðal annars að baða hann í framan, helvískaní' Þú hefur ekki sýnt í Hafnarfirði síðan 1948. Mannstu vel eftir þeirri sýningu? „Já, já. Ég hélt hana í Sjálfstæð- ishúsinu skömmu áður en ég hélt til framhaldsnáms í Kaupmannahöfn. Þessi sýning fékk ágæta aðsókn, bæði Hafnfirðingar og fólk úr Reykjavík sótti hana. Og ég seldi talsvert af myndum, ótrúlegasta fólki, að mér fannst. Árangurinn varð sá að ágóðinn af sýningunni fór langt með að halda mér uppi í Kaupmannahöfn í 2 ár. Til þess þurfti ég auðvitað að vera forsjáll og góður búmaður. Það var svo sem ekki erfitt, því ég hef alltaf tamið mér að fara vel með fé og eyða ekki um efni fram“ Minnistu einhverra Hafnfirðinga sem hvöttu þig á þessum tíma? „Já, þeir voru sem betur fer margir. Ég ætti kannski ekki að nefna nein nöfn, en ég get ekki stillt mig um að nefna Helga heitinn Hér er Eiríkur að vinna að stóru málverki. Það er hrikaleg náttúra Norður-Stranda sem þarna hefur gefið honum „tnspírasjónina**. Jónsson, bíóstjóra, og þeir voru betri en engir Ásgeir heitinn Stefánsson og Eiríkur Björnsson, læknir. Ég læt þessi 3 nöfn nægja, en þeir voru fleiri sem sýndu mér velvilja og hvöttu mig til dáða á þessum árum“ Megum við eiga von á því að Eiríkur Smith haldi sýningu hér í Hafnarfirði á næstunni? „Það er aldrei að vita. Ef ég fæ nógu myndarlegan sal til að sýna í þá væri það tilvalið" Er einhver mynd sem þú hefur málað þér minnis- stæðari en önnur? „Nei, ég lít á þetta allt í sam- hengi. Mín verk eru mér sem ákveðin heild eða keðja, þar sem enginn hlekkur er öðrum fremri. Ég hef aldrei látið mynd frá mér með eftirsjá. Það væri nú ljóta uppá- koman ef ég þyrfti að grenja á eftir hverri mynd“ Hér látum við staðar numið. Eiríki Smith þökkum við fyrir spjallið og ekki síður þann höfðing- skap að leyfa okkur að prýða for- síðu Fjarðarfrétta með listaverki eftir sig. HlaÐBORÐ Laugardaginn 21. des. og á Þorláksmessu, kl. 18 - 22, bjóðum við upp á hið árlega jólahlaðborð. Verð fyrir fullorðna aðeins kr. 500. - Verð fyrir 6-11 ára börn aðeins kr. 250. - Frítt fyrir börn yngri en 6 ára. Veitingahúsið GAFL-INN og GAFL NESTI þakka fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða og óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýja árinu. GAFL-INN; opnunartími um hátíðarnar:_ Laugardagur 21. des. kl. 08 - 23.30 Mánudagur 23. des. kl. 08 - 23.30 Aðfangadagur lokað | Jóladagur lokað | 2. jóladagur lokað Gamlársdagur kl. 08 - 13.00 Nýársdagur lokað Alla aðra daga er opið kl. 08 - 22.00 GAFt-mn V/RE YKJANESBRA UT, HAFNARFIROl SÍMAR 54477, 54424

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.