Fjarðarfréttir - 01.12.1985, Qupperneq 33

Fjarðarfréttir - 01.12.1985, Qupperneq 33
FJARÐARFRÉTTIR 33 draumi af mannlausum bíl og merki um bílslys. Þessi mynd sat í mér og mér fannst ég geta afstýrt þessu slysi. M.a. gerði ég mér far um að stöðva Ijóslausa bíla og vara ökumenn við. Skömmu síðar þurfti sonur minn að fara á íþróttaæfingu inn í Reykjavík, og enn skaut mynd- inni af bílslysinu upp í hugann. Ég bað hann að aka sérstaklega varlega og taka ekki á sig neina króka. Seinna um kvöldið er hringt í mig og tilkynnt að sonur minn hafi lent í árekstri. Ég flýti mér inn eftir og þegar ég kem á staðinn birtist mér nákvæmlega sama sýnin og í draumnum. Sonur minn var ómeiddur inni í lögreglubíl að gefa skýrslu. Þess vegna var bíllinn mannlaus. Öðru sinni kom fyrirboði mér sjálfum að gagni. Þá fannst mér að eitthvað myndi henda mig á leiðinni í vinnuna, en ég vann inni í Breið- holti þá. Ég ákvað að fara samt, en bað son minn um að aka mér. Hann var hálftregur féllst þó á þetta með semingi. Þegar við vorum á leið upp í gegnum Kópavoginn komum við þar að sem viðgerðarmenn eru að lagfæra raflínur og laskaðan ljósa- staur eftir slys þá um nóttina. í sömu mund og við ökum framhjá, skiptir engum togum að staurinn fellur á götuna, beint fyrir framan bílinn. Sonur minn snarhemlaði og við stöðvuðumst rétt við staurinn. Ég sá strax að sjálfur hefði ég ekki haft þann viðbragsflýti sem þurfti til að afstýra slysi, og að þetta hefði verið atvikið sem ég fann á mér að myndi henda mig. Ég sagði því við son minn: „Snúðu nú við heim. Ég fer sjálfur á bílnum í vinnuna" Gerirðu þér grein fyrir hvert þú sækir þennan kraft? Er það á ein- hvern hátt skylt trúarbrögðum eða œðri máttarvöldum? Ég geri mér grein fyrir því að hér eru á ferðinni utanaðkomandi öfl, en ég tengi þau ekki ákveðnum trúarbrögðum. En þessi kraftur er af hinu góða og mér finnst aðal- atriðið vera að hjálpa manninum að finna það góða í sjálfum sér. Maður sem ekki er sáttur við sína tilveru er gjarn á að draga aðra niður með sér. Sjálfur hef ég tamið mér víðsýni í trúarbrögðum og tel þá menn trúaða sem láta stjórnast af hinu góða í hugsun og verki. Ég tel engin trúarbrögð rétthærri en önnur og með því að líta niður á trú annarra skemmir maður sína eigin. Það besta í öllum trúarbrögðum er jafn- gott, og það versta jafnslæmt, t.d. hvers kyns djöfladýrkun. í æsku ólst ég upp á heimilum, þar sem annars vegar var strang- trúað hvítasunnufólk en hins vegar spíritistar. Þá lærði ég að fara bil beggja. Fyrir 30 árum fór ég svo að stunda jóga, sem sprottið er úr austurlenskum trúarbrögðum, og þangað höfum við margt að sækja. Jóga kennir manni að hreinsa og styrkja hugann og hjálpar til við að losna við hatur og reiði. Með hug- leiðslu er á stuttum tíma hægt að ná meiri þroska en á 30 árum án hennar. Hvernig hefur fjölskylda þín tekið þessu lœkningastarfi? Ég myndi aldrei gera þetta ef fjölskyldan væri því mótfallin og tæki ekki á einhvern hátt þátt í því. En ég er flókinn persónuleiki og það er oft erfitt að skilja mig, líkt og það er erfiðara að skilja flókna tónlist en einfalt lag. Margt fleira ber á góma í spjalli okkar við Harald. M.a. sýnir hann okkur bunka af smásögum sem hann hefur skrifað. Þær verða oftast til á svipaðan hátt og lækn- ingarnar. Einhverjar hugsanir verða svo áleitnar að hann verður að koma þeim frá sér á einhvern hátt. Þá er best að setjast niður og skrifa sögu, oftast einhverja dæmi- sögu, þar sem hugsanirnar fá á sig form. Mjög fáar af sögum Haralds hafa birst opinberlega, en hann hefur hug á að gera á því bragarbót ef tækifæri gefst. Viðtal við Harald Magnússon getur samt ekki endað án þess að minnst sé á íþróttirnar. Svo sterkur þáttur hafa þær verið í lífi hans. í íþróttunum hefur mér persónu- lega tekist að upphefja kynslóða- bilið. Starfið með unga fólkinu hefur séð til þess. Þetta landlæga bil milli kynslóðanna í nútímaþjóð- féiagi er í meira lagi óæskilegt, því alíir aldurshópar þurfa að þroskast hver af öðrum. í íþróttunum bland- ast hópurinn á annan hátt en víða í þjóðfélaginu, þar sitja t.d. allir við sama borð hvort sem þeir koma úr fjölskyldum sem eru af háum eða lágum stigum, ríkum eða fátækum. Þarna hef ég eignast marga góða vini, ef til vill þá einu sönnu, því unga fólkið er oft hreinna og beinna en þeir fullorðnu. Það er mér alltaf mikil gleði þegar fulltíða fólk segist aldrei hafa lifað ánægju- legri ár en í hópi frjálsíþróttafólks- ins okkar. Þá finn ég best hve mikils virði þetta starf er og það eru mín laun. En þetta er kostnaðarsamt starf og án utanaðkomandi hjálpar á því sviði hefði það aldrei gengið svona vel. Ég vil því koma á fram- færi þökkum til allra þeirra fyrir- tækja sem hafa lagt okkur lið, og get ekki stillt mig um að nefna sér- staklega ÍSAL, Sparisjóð Hafnar- fjarðar og Kaupfélagið. Um leið og þessum þökkum er komið á framfæri, þökkum við Haraldi Magnússyni fyrir að leyfa okkur að fá innsýn í þann þátt starfa hans og lífsskoðunar, sem fæstir vissu um. VinningaríH.H.Í. 1986: 9 ákr. 2.000.000; 108 ákr. 1.000.000; 216 á kr. 100.000; 2.160 ákr. 20.000; 10.071 á kr. 10.000; 122.202 á kr. 5.000; 234 aukavinningarákr. 20.000. Samtalsl 35.000 vinningar á kr. 907.200.000. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS vænlegast til vinnings

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.