Fjarðarfréttir - 01.12.1985, Page 54

Fjarðarfréttir - 01.12.1985, Page 54
54 FJARÐARFRÉTTIR Jón fjósi og hjólbörurnar Smásaga eftir Sigurð Helga Guðmundsson: Hann var kallaður Jón fjósi. Fáir vissu af hverju. Nafnið hafði ein- hvern veginn fest við hann og varð ekki afmáð þó svo hann væri opinber embættismaður. Eða ef til vill einmitt vegna þess embættis sem hann hafði með höndum. Jón fjósi var enginn hvítflibba- maður og taldist ekki til þess hóps sem boðið er í fínar veislur eða opinber samkvæmi þó hann hefði embætti með höndum. Föt hans voru alla jafna þvæld þó þau væru ekki beinlínis óhrein og hendur og andlit grómtekin eins og gjarnan vill verða um líkamshluta sem sjald- an komast í snertingu við vatn og sápu. Jón fjósi var opinber kamar- hreinsari. Starfsvettvangur hans var plássið, þorp innst við fjarðarbotn þar sem einnig mátti finna aðra opinbera embættismenn sem Jón taldi sig í flokki með þó lítill væri samgangurinn. Það voru sýslumað- ur, læknir, skólastjóri, kennari og prestur. Þar var einnig að finna apótek, úrsmið, tvær kaupmanna- verslanir og kaupfélög. Jón taldi sig eiginlega standa ofan við starfs- menn þess flokks, enda töldust þeir ekki til opinberra starfsmanna, að nú ekki væri talað um iðnaðar- menn, sjómenn og tómthúsmenn sem annars voru all fjölmennir í plássinu. Tæknin hafði haldið innreið sína í plássið með tilkomu ökutækja. Lengi vel var Jón fjósi einn um að hafa afnot slíks ökutækis sem fylgdi embætti hans. Ef þú heldur að hér hafi verið um að ræða ein- hverja stássbifreið, þá skjátlast þér. Slíkt verkfæri var ekki til í plássinu. Þar fannst ekki einu sinni hest- kerra. Ökutækið sem hér er um að ræða var hjólbörur. Á hverjum morgni fyrir rismál ók Jón fjósi þessu frábæra ökutæki frá einu náðhúsi til annars og tæmdi föturnar í hjólbörunar. Inni- haldinu var síðan ekið í þró fyrir utan þorpið. Jón tók líka að sér gegn hæfilegu gjaldi að aka úr þrónni á tún manna eða flög sem voru í vinnslu og áttu síðar að verða að iðjagrænum sléttum. Stundum bar það við að náðhús- in voru læst til þess að óviðkomandi legðu þangað ekki leið sína. Ef svo bar við kom Jón í heimsókn eftir fótaferðatíma og gerði vart við sig, eldhúsmegin. Þegar komið var til dyra fóru við- brögð Jóns nokkuð eftir því hvar sá stóð í virðingarstiganum sem opn- aði dyrnar. Ef það var einhver úr hópi fyrirmanna staðarins, var hann auðmýktin sjálf. En það voru einkum kamrar slíkra manna sem voru þannig útbúnir að þeim mætti læsa. Jón hneigði sig þá auðmjúk- lega og sagði: „Það er vandræða ástand, vandræða ástand". Ef þessi ræða skildist ekki krunkaði í hon- um um leið og hann sagði: „Það er náðin, það er náðin. Það er ólag á náðinni". Lengra fékkst hann ekki til að fara í lýsingu sinni á erindinu. Ef það var vinnukona eða krakki sem til dyra kom, krunkaði stutt- aralega í honum: „Það er loka á náðinni". Embættisfarartæki Jóns fjósa var í notkun hvern einasta dag. Það var því ekkert undarlegt þó það léti á sjá. Enda lagðist þar allt á eitt, mikil og stöðug notkun, harkaleg meðferð og óvönduð smíði í upp- hafi. Jón veitti þessu að vísu athygli og hafði áhyggjur af. En ráð kunni hann engin. Það var ekki auðvelt að leggja í slíka fjárfestingu, jafnvel fyrir opinbera embættismenn. Það var annar kaupmaðurinn sem hafði orð á því við Jón að ökutæki hans, og í raun hjartans vinur, væri orðið lasburða. Jón fjósi hryggðist við þessa ræðu og taldi illa komið sín- um málum, en úrbætur ekki auð- fundnar. Kaupmaður hafði orð á því að nú væri komið annað ökutæki í byggð- arlagið því kaupfélagið hefði orðið sér úti um hjólbörur til að flytja í vörur til viðskiptamanna. „Minnstu ekki á þá dýrðþ mælti Jón fjósi. „Þær eru hreinasta þing. Grænmálaðar og fernisbornar og kostuðu fimmtíu krónur hjá Guð- mundi snikkaraí* Kaupmaður taldi að vísu að það væri mikið fé en hugsa mætti til annarra ráða. „Hefur þér aldrei, Jón minn, flogið í hug að halda þín- um börum undir kaupfélagsbör- urnar. Þér er án efa kunnugt um hversu vel tókst til hjá lækninum þegar hann lét halda Skjöldu undir kaupfélagsbola. Útkoman var kostagripur eins og þú veist. Ég skal meira að segja borga fyrir þig toll- inn ef vel tekst til“ Andlitið á Jóni fjósa varð ein augu við þessa ræðu kaupmanns, en hann sagði ekkert. Gekk aðeins hugsandi leiðar sinnar. Síðar um daginn kom Jón fjósi að pakkhúsi kaupfélagsins þar sem hjólbörur þess voru geymdar. Jón nam staðar við gaflinn undir pakk- húsveggnum og hvolfdi þar hjól- börum sínum á grúfu. Hann leit laumulega í kringum sig og tók því næst hjólbörur kaupfélagsins og fór að hnika þeim utan í sínar. Ekki reyndist honum þó auðvelt að finna réttu aðferðina og góða stund var hann að bauka við hjólbörurnar. Svo hagaði til að skrifstofur kaupfélagsins voru í húsi beint á móti pakkhúsinu. Stefáni kaupfé- lagsstjóra hafði orðið litið út um gluggann á skrifstofu sinni og séð til ferða Jóns. Þegar hann var enn að bauka við hjólbörurnar hálftíma síðar gat hann ekki stillt sig um að taka Jón tali til að svala forvitni sinni. Jón fjósi greindi kaupfélags- stjóra greiðlega frá erindi sínu og gat um loforð kaupmanns að greiða tollinn. Stefán sagði Jóni að slíkar kosta- börur sem kaupfélagsbörurnar væru hlytu að vera búnar að fylja börur hans eftir svo marga hnykki. Skyldi hann því fara rólegur heim til sín og fara vel með börur sínar næstu sex vikurnar sem væru venjulegur meðgöngutími. Þegar að því kæmi að þær köstuðu skyldi hann svo ræða við sig á nýjan leik. Um það bil sex vikum síðar gerð- ist það þegar Jón kom á fætur til að hefja sín venjulegu morgunstörf að hjólbörurnar voru kastaðar. Við hlið þeirra voru nú spánýjar börur, blámálaðar og hin besta smíð. Strax og þess mátti vænta að kaupfélagsstjóri væri kominn á fætur flýtti Jón fjósi sér á fund hans og greindi honum frá viðburð- um næturinnar, að börur sínar hefðu kastað um nóttina fullvöxn- um hjólbörum. Stefán kaupfélags- stjóri óskaði honum til hamingju með nýju börurnar og bað hann jafnframt að taka fyrir sig reikning til kaupmanns fyrir tollinn. Jón var fús til þess og flutti kaup- manni reikninginn um leið og hann sýndi honum nýju börurnar. Kaupmaður opnaði umslagið með reikningnum sem ritaður var á prentað reikningseyðublað sem ætlað var fyrir þá sem annars nutu þjónustu kaupfélagbola. Strikað hafði verið yfir orði nautstollur og sett í staðinn hjólbörutollur kr. 50.00. Greiðsla óskast send Guðmundi snikkara við fyrsta tækifæri. Kaupmaður taldi sér skylt að greiða reikninginn og afkvæmið undan hjólbörum Jóns fjósa og kaupfélagsins þjónaði vel hlutverki sínu við hreinsun á náðhúsum bæjarbúa þau tvö ár sem Jón fjósi átti eftir ólifuð.

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.