Fréttablaðið - 13.03.2021, Blaðsíða 26
um og geri í raun enn, enda er það
besta leiðin til þess að gera plön,“
segir hún og bendir á að það sé hollt
að láta sér leiðast. „Það lætur sér
enginn leiðast lengi.“
Steinunn segir auðvelt að hverfa
inn í störf eins og hún hefur verið í
en hún noti píanóið til streitulosun-
ar enda sé það góð leið til að gleyma
stað og stund. „Ég spila á hverjum
degi og harðneita að fara úr formi.“
Þó að Steinunn hafi verið í mikl-
um ábyrgðarstöðum undanfarinn
áratug hefur hún ekki sagt skilið við
píanóleikarann og í 20 ár hefur hún
leikið á píanó með Karlakórnum
Fóstbræðrum. „Það er alveg ein-
stakt,“ segir hún og grínast með að
guð hafi loks bænheyrt hana enda
hafi hún beðið heitt um bróður
sem ung stúlka. „Ég bauðst meira að
segja til að hætta að bora í nefið ef
það mætti f lýta fyrir því að ég yrði
bænheyrð sem var mikil fórn þegar
ég var fimm ára.“
Steinunn hefur tekið að sér eitt og
eitt spilaverkefni en það hefur ekki
verið mikill aukatími frá þessum
störfum. „Píanóleikur er mín nær-
ing, lífsfylling og innri fínstilling.“
Ólýsanlegur tími í Hörpu
Talið berst að því þegar Steinunn
var ráðin fyrsti tónlistarstjóri þá
óopnaðrar Hörpu; stuttu eftir hrun
og Búsáhaldabyltingu.
„Ekkert í mínu lífi mun nokkurn
tíma toppa það að standa í stafni
við opnun Hörpu á sínum tíma. Það
var ólýsanlegt á allan hátt, eins og
að nema nýtt land, ótrúlega spenn-
andi en á sama tíma mikil áskorun.“
Eins og fyrr segir voru uppi gagn-
rýnisraddir úr ýmsum áttum og
segist Steinunn hafa lært mikið á
mótlætinu.
„Fólk átti erfitt, það var að missa
eignir og störf og sá þetta stórkost-
lega hús byggt fyrir fé sem þjóðin
kannski átti ekki. Þjóðfélagið var
ekki komið í jafnvægi og fólk ekkert
endilega á því að við þyrftum tón-
listarmusteri. Því blossaði upp reiði
sem er svo eðlilegt en í stað þess að
beina reiðinni að húsinu beindist
hún meðal annars að mér,“ rifjar
hún upp og segist þarna hafa lært
að setja hlutina í víðara samhengi.
„Maður getur ekki leyft sér að
hvíla í egóinu þegar maður er stjórn-
andi. Þarna lærði ég tæknina við að
taka egóið úr sambandi og setja mig
í spor þeirra sem í hlut áttu og sjá
samhengið.“
Skilur erfiða stöðu söngvara
Með þennan lærdóm í farteskinu
tók Steinunn við stöðu óperustjóra
árið 2015. Nýverið féll dómur í máli
söngkonunnar Þóru Einarsdóttur
gegn Íslensku óperunni og var hann
óperunni í vil. Í framhaldi gaf Fag-
félag klassískra söngvara út van-
traustsyfirlýsingu á hendur stjórn
Óperunnar.
„Það er auðvitað leiðinlegt þegar
mál fara í þennan farveg en þegar
það gerist verður það að hafa sinn
gang,“ segir Steinunn sem nú bíður
eftir ákvörðun Landsréttar.
„Það þarf að vinna úr stöðunni
og finna samhljóm til framtíðar og
ég mun beita mér fyrir því. Ég skil
erfiða stöðu söngvara á Íslandi vel.
Þetta er mjög erfið starfsgrein þar
sem mikið er lagt á sig án tryggingar
um að fá tækifærin sem þér finnst
þú verðskulda og hafa hæfni til að
takast á við. Það er mikið um hafn-
anir enda margir sem sækjast eftir
hverju hlutverki. Svo ég skil mjög vel
að það fylgi þessu frústrasjón og get
sett mig í þeirra spor.“
Ágreiningur hefur staðið um laun
og vinnutíma og fannst söngvurum
í uppsetningu Óperunnar á Brúð-
kaupi Fígarós á sér brotið. Dómur-
inn staðfesti þó að svo hefði ekki
verið.
„Kjarabarátta á þó alltaf rétt á sér
og við styðjum hana heils hugar.
Það er mikilvægt fyrir okkur að
fólk sé sátt enda er hér um að ræða
mannauð stofnunarinnar, fólkið
sem stendur uppi á sviði og gerir
galdurinn. En það þarf að vera sam-
hljómur um það hvernig sú nálgun
er. Lagalega þarf þetta að vera rétt.
Þetta eru tvær umræður, kjarabar-
áttan sem við styðjum og svo hins
vegar þessi deila sem kom upp um
hvort væri hægt að taka upp verk-
samning og leiðrétta valda liði eftir
á en dómurinn skar úr um að væri
ekki.
Ekki allir söngvarar ósáttir
Það þýðir aftur á móti ekki að við
séum á móti því að söngvarar sam-
einist um að bæta sín kjör innan
þess fjárhagslega bolmagns sem við
höfum sem hefur verið takmarkað,“
segir Steinunn og bendir á að ekki
séu allir söngvarar ósáttir. „Margir
söngvarar hafa sent mér hvetjandi
skilaboð og sagt að þetta sé ekki í
þeirra nafni og að þeir séu ósáttir
við hvað umræðan hefur orðið per-
sónuleg, ófagleg og rætin og finnst
það ekki í lagi. Það þykir mér mjög
vænt um. Við höfum því líka fundið
mikinn stuðning.“
Steinunn bendir jafnframt á að
söngvararnir séu ekki fastráðnir
og því hver og einn handhafi síns
samningsumboðs.
„En auðvitað þarf ramminn að
vera skýr og því þarf að hugsa upp
á nýtt hvernig við viljum gera þetta
og ég er viss um að söngvarar vilja
hafa þessa hluti í lagi rétt eins og við.
Næsta skref er því að bjóða til sam-
tals og koma á sameiginlegri sýn
sem við gerum með því að heyra
þeirra sjónarmið og semja okkur
að því innan þess ramma sem við
getum. Við viljum láta á það reyna
hvort það sé ekki besta leiðin til að
lægja þessar öldur. Ég get ekki verið
annað en bjartsýn um að það takist
en hagsmunir Óperunnar eru þeir
sömu og íslenskra söngvara. Því
hlýtur það að vera allra hagur að
finna leiðir til að ganga í takt.“
Umdeilt starf
Persóna Steinunnar hefur oftar
en ekki verið dregin fram þegar
stofnanirnar sem hún hefur farið
fyrir hafa verið gagnrýndar og þó
hún viðurkenni að það geti tekið
á er engan bilbug á henni að finna.
„Maður tekur ekki að sér svona
stöðu ef maður þolir ekki hnjask.
Listrænir stjórnendur verða alltaf
umdeildir enda hefur fólk mismun-
andi sýn og áherslur í verkefnavali.
Því sitja listrænir stjórnendur alltaf
tímabundið, annað væri ekki hollt
fyrir þá né stofnunina sem þeir
starfa fyrir,“ segir Steinunn sem
er ráðin út árið 2023 og mun ekki
sækjast eftir endurráðningu.
Aðspurð hvað taki við að þeim
tíma liðnum svarar Steinunn:
„Þegar ég starfaði sem ráðgjafi fyrir
írsku ríkisstjórnina þegar þeir voru
að móta sína óperustarfsemi og
einnig fyrir menntamálaráðherra
Lettlands nýverið kynntist ég því
hversu gefandi slík störf eru. Mér
finnst spennandi tilhugsun að geta
miðlað af þeirri reynslu sem ég hef
tileinkað mér á þessum þremur
áratugum sem listrænn stjórn-
andi. Mig langar sérstaklega til
þess að valdef la ungar konur sem
hallar talsvert á sem stjórnendur.
Kannski gæti ég bara orðið ágætis
þrautseigjuþjálfari eftir þetta allt
saman?“
Sterkt orðspor Óperunnar
Nú er undirbúningur hafinn fyrir
nýtt leikár Óperunnar en vonir
standa til að hægt verði að opna
dyrnar í haust.
„Nú bíða allir í ofvæni eftir að
komast upp á svið og á óperu-
sýningu en við vorum að taka
ákvörðun um að taka aftur upp
sýninguna La Traviata sem hætti
fyrir fullu húsi 2019. Sýningin hefur
síðan verið leigð til Kanada og í
þrjú óperuhús í Frakklandi. Það er
mikill heiður fyrir okkur og mikil-
vægt fyrir okkar orðspor auk þess
sem þetta er nýr tekjustofn. Því
fannst mér liggja beint við að taka
upp þessa f lottu sýningu og ég er
að vinna að því að við getum farið
með hana út á land enda viljum við
standa undir nafni sem Ópera allra
landsmanna.“
Íslenska Óperan er sannarlega
komin á kortið erlendis og koma
erlendir óperuunnendur gagngert
á sýningar hennar í auknum mæli
sem er eitt af markmiðum Íslensku
óperunnar í síðustu stefnumótun.
„Það gera sér ekki allir grein fyrir
því hversu sterkt orðspor Íslensku
óperunnar er erlendis. Hingað
koma mest ferðamenn frá Svíþjóð
og þýskumælandi löndum en við
höfum auk þess merkt aukinn
áhuga frá hinum Norðurlöndunum
og Bandaríkjunum og erum í sam-
starfi við öflugar menningarferða-
skrifstofur.
Það er gott að finna að við höfum
ekki gleymst þó eyða hafi myndast
undanfarið ár,“ segir Steinunn að
lokum.
Harpa hefur nánast verið annað heimili Steinunnar undanfarinn áratug en áður en hún varð óperustjóri var hún tónlistarstjóri Hörpu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Steinunn segist vel skilja erfiða stöðu söngvara á Íslandi og vill leita sátta.
MARGIR SÖNGVARAR HAFA
SENT MÉR HVETJANDI
SKILABOÐ OG SAGT AÐ
ÞETTA SÉ EKKI Í ÞEIRRA
NAFNI OG AÐ ÞEIR SÉU
ÓSÁTTIR VIÐ HVAÐ UM-
RÆÐAN HEFUR ORÐIÐ
PERSÓNULEG, ÓFAGLEG
OG RÆTIN OG FINNST ÞAÐ
EKKI Í LAGI.
1 3 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R26 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð