Fréttablaðið - 13.03.2021, Síða 70
Það
gekk
á ýmsu til
að byrja
með.
Jakob Einar
Jakobsson
Alla munar um að
fá gefins 5000 kall
til að krydda aðeins
tilveruna í mat og drykk,
afþreyingu, gistingu,
menningu, óvæntri
upplifun eða góðu dekri
fyrir líkama og sál.
Jakob Einar Jakobsson, eigandi
Jómfrúarinnar og sonur stofnand-
ans Jakobs Jakobssonar, stendur
í stórræðum ásamt samstarfs-
fólki sínu þessa dagana, þar sem
Jómfrúin fagnar 25 ára afmæli á
þessu ári.
Jómfrúin var stofnuð í janúar 1996
af föður Jakobs og eiginmanni hans,
Guðmundi Guðjónssyni. „Pabbi
lærði smurbrauðsfræðin hjá Idu
Davidsen í Kaupmannahöfn og
hafði lengi gengið með þann draum
að opna sinn eigin veitingastað. Til-
viljun réði því að þessi staðsetning
varð fyrir valinu og hefur Jómfrúin
verið hér við Lækjargötu allar götur
síðan í þennan aldarfjórðung,“ segir
Jakob.
Byrjuðu með tvær hendur tómar
„Það gekk á ýmsu til að byrja með
og það er ekki ofsögum sagt að
pabbarnir mínir hafi byrjað með
tvær hendur tómar og báru fyrstu
árin svolítið merki þess. Peningar
voru hvorki settir í glæstar innrétt-
ingar né íburð og til að mynda var
opnunartíminn bara til 18 og lokað
á sunnudögum. Þannig gátu þeir
unnið alltaf sjálfir á lúsarlaunum
og haldið launakostnaði í lágmarki.
Ég held að menn opni almennt ekki
staði í dag með þessum hætti. Eftir
2-3 ár í rekstri var hins vegar orðið
brjálað að gera, það tók þann tíma
fyrir orðróminn um Jómfrúna að
berast út, segja má að þannig hafi
það haldist síðan.“
Rauðsprettan allra vinsælust
Þegar Jakob er inntur eftir því hvaða
smurbrauð hafi verið vinsælast frá
upphafi, stendur ekki á svari: „Rauð-
sprettan – ingen over. Ingen ved
siden. Danir sem hingað hafa komið
segja hana mikið mun betri en
heima fyrir. En svo verður að nefna
puru steikina með sýrðu grænmeti
og soðsósu af heitu réttunum svona
sögulega séð. Af nýjum réttum á
matseðlinum okkar er hægt að
nefna Roastbeef Bernaise sem er
með stökkum „kartoffelchips“, sult-
uðum rauðlauk og bernaise-majó-
nesi, en einnig get ég sagt frá reyktri
andarbringu með piparrótarrjóma
og kryddjurtum sem slegið hefur
í gegn. Hún er soldið jólaleg en
aðventan á líka stóran sess í hjarta
Jómfrúarinnar sem okkar mesta
háönn ársins, svo það má segja
að það sé viðeigandi að hafa einn
svona „jólarétt“ allt árið um kring.“
Lengsti ákavítislisti landsins
Hafa orðið breytingar á rekstrinum?
„Já, ég segi stundum að við höfum
breytt öllu en samt engu. Enda var
ekki um að ræða breytingar breyt-
inganna vegna. heldur endurbætur
í víðasta skilningi. Við pabbi vorum
sammála um að margt í innrétt-
ingum og andrúmsloftinu sem ríkti
á Jómfrúnni mætti „modernisera“,
enda eðlilegt að hlutir láti á sjá á 20
ára tímabili.
Það var leiðarljósið í þeim fram-
kvæmdum sem við fórum í. Að gera
hluti þannig úr garði að gestir, og
ekki síður starfsfólk. gæti fengið
meira út úr veru sinni á Jómfrúnni.
Við bjuggum til bar, gerðum
hlýlegra innanhúss með efnisvali,
lýsingu og bættri hljóðvist, auk
þess sem við bættum starfsmanna-
aðstöðu og vinnuaðstöðu okkar
starfsmannanna. Opnunartíminn
var lengdur og matur og drykkir
þróaðir samhliða því, við erum til
dæmis með lengsta ákavítislista
landsins og þó víðar væri leitað.
Ég er líka svo heppinn að hafa Óla
bróður minn með mér í þessu öllu
sem veitingastjóra og þar að auki
sem menntaðan framreiðslumann.
Við vinnum mjög vel saman ásamt
okkar góða fólki.
Oft er sagt að tölurnar tali sínu
máli og þær segja okkur að við
höfum gert rétt.
Auka alúð á afmælisári
Margt spennandi er fram undan á
afmælisárinu og aðspurður segir
Jakob að fyrst og fremst verði hlúð
að því sem vel hefur verið gert.
„Það eru vissulega áskoranir í því
að halda árslangt afmæli á tímum
þar sem strangar skorður eru settar
á gestafjölda. Það er jú grundvöllur
farsæls veitingarekstrar að fólki
sé heimilt að koma saman og sem
betur fer horfir til betri vegar í
þeim efnum.
Jómfrúin í 25 ár
Skálað fyrir afmælinu með kampavíni fá Kampavínsfjélaginu, sem boðið er upp á hjá Jóm-
frúnni og parað með smurbrauði. Stefán Einar Stefánsson, formaður Kampavínsfjélagsins,
Brynjólfur Óli Árnason veitingastjóri (Óli bróðir) og Jakob Einar Jakobsson.FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ákavítis- og
rauðbeðu-
grafinn lax á
súrdeigsbrauði
með með lár-
peru og krydd-
jurtum.
Brauð sem við köllum bara „vegan
smörrebröd“ sem er sólkjarnarúg-
brauð með edamame hummus,
lárperu og radísuspírum.
Roastbeef bernaise með stökkum
„kartoffelchips“, sultuðum rauð-
lauk og bernaise-majónesi.
Senn kemur vorið og ekki seinna
vænna að njóta lífsins og lands-
ins gæða, nú þegar helgarfrí
gefst og dagarnir kalla á nýjar og
kátari minningar eftir hvimleiðan
COVID-vetur. Því er tilvalið að
nota ferðagjöfina sem allir Íslend-
ingar eldri en átján ára fá notið til
31. maí og er liður í að styðja við
bakið á íslenskri ferðaþjónustu í
heimsfaraldrinum og hvetja lands-
menn til að eiga góðar stundir víðs
vegar um landið.
Alla munar um að eiga 5.000
króna ferðaávísun til að gera sér
dagamun og dekra við sjálfan
sig, hvort sem það er að fara út
að borða og panta sér dýrindis
steik á uppáhaldsveitingahúsinu
sínu, gista á rómantískum stað í
íslenskri náttúru, sækja menn-
ingarviðburði eða upplifa eitthvað
ævintýralegt eins og bátsferð,
hvalaskoðun, fara á hestbak,
vélsleðaferð, útsýnisflug eða
annað óviðjafnanlegt í minninga-
bankann.
Ferðagjöfin er sótt á Ísland.is og
til að nýta hana í eitthvað dásam-
lega skemmtilegt þarf að ná í smá-
forritið Ferðagjöf í App Store eða
Play Store og í framhaldinu er hægt
að skanna strikamerki við kaup á
þjónustu. Þeir sem eru ekki með
snjallsíma geta nýtt ferðagjöfina
beint inni á Ísland.is og á ferdalag.is
er hægt að sjá hvaða fyrirtæki taka
á móti ferðagjöfinni og þrengja
leitina við tiltekin landsvæði.
Allir eru hvattir til að nýta
gjöfina í tæka tíð og aldeilis kjörið
að nota tímann fram til 31. maí til
að lifa og leika sér með gefins 5.000
krónur upp í gamanið. Heimilt er
að gefa ferðagjöfina í smáforritinu
Ferðagjöf, sem og beint af Ísland.
is. Smellt er á „Sækja Ferðagjöf“ og
þá opnast gluggi með valmögu-
leikunum að nota ferðagjöfina eða
„Gefa áfram“. Þannig getur ferða-
ávísunin orðið öðrum til gleði og
alveg frábær tækifærisgjöf.
Með ævintýri og dekur upp á vasann
Það væri synd að nota ekki ferðaávísunina góðu til að njóta með sjálfum
sér, vinum eða fjölskyldunni í mat eða menningu, ferðalögum eða fjöri.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn@torg.is
Við höfuð því ekki blásið í stóru
lúðrana til að fagna afmælinu
okkar og ætlum ekki að gera það.
Við viljum og ætlum í staðinn að
leggja bara auka alúð við það sem
við teljum okkur hafa gert vel alla
tíð, það að vera gestrisin og góð
heim að sækja.
Þó get ég nefnt það að við
ætlum að hafa djassprógramm
sumarsins einkar veglegt og
stefnum á útgáfu bókar fyrir
árslok, sem verður jólagjöfin
fyrir sælkerann og „veitingaspe-
kúlantinn“. Einnig höfum við
hafið sölu á frábæru kampavíni
sem við höfum í einkasölu hér á
landi og þannig viljum við bjóða
landsmönnum að skála saman á
Jómfrúnni við sig og sína og fyrir
Jómfrúnni.“
6 kynningarblað A L LT 13. mars 2021 LAUGARDAGUR