Fréttablaðið - 05.06.2021, Page 10

Fréttablaðið - 05.06.2021, Page 10
Öryggisíbúðir Eirar til lEigu í grafarvogi Vandaðar öryggis- íbúðir Eirar til leigu í Eirarhúsum, Hlíðarhúsum 3–5, 112 Reykjavík. Eir öryggisíbúðir ehf. - Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík Netfang: ibudir@eir.is - Sími 522 5700, milli 8 og 16 virka daga . n Rólegt og notarlegt umhverfi með aðgengi að metnaðarfullri aðstöðu og þjónustu með það að markmiði að einstaklingurinn geti búið lengur heima. n Öryggisvöktun allan sólarhringinn. n Aðgengi að mötuneyti og félagsmiðstöð. n Góðar gönguleiðir í nágrenninu. Sendið fy rirspurn á netfang ið: ibudir@e ir.is Rúmlega 300 manns komu með Norrænu í land á Seyðis- firði á þriðjudag. Þeir fram- vísuðu nánast allir gildum bólusetningarvottorðum. Framkvæmdastjóri Smyril Line á Íslandi, útgerðar Nor- rænu, segir fjölda ferðamanna vera að aukast. benediktboas@frettabladid.is SAMGÖNGUR Norræna kom á þriðju- dag til Seyðisfjarðar og gengu 296 farþegar í land. Af þeim framvísuðu 222 gildum bólusetningarvott- orðum, samkvæmt tilkynningu frá aðgerðastjórn á Austurlandi. Þar segir enn fremur að þetta sé svipað hlutfall og hjá flugfarþegum er fara um Leifsstöð. Óbólusettir virðast því flestir halda sig heima við enn sem komið er. Linda Gunnlaugsdóttir, fram- kvæmdastjóri Smyril Line á Íslandi, segist finna fyrir aukningum í bók- unum. Sú breyting hefur orðið að ferðamenn hringja meira á skrif- stofurnar til að leita sér upplýsinga og þá er hægt að nýta sér ferðina sem tveggja daga sóttkví. „Við erum að sjá vöxt núna og bara í júlí eru eðlilegri tölur í kortunum. Þær eru auðvitað langt frá tölunum 2019 en það er verið að sýna Íslandi mikinn áhuga sem ferðamannastað. Við teljumst öruggt land enda framarlega í bæði sóttvörnum og bólusetningum,“ segir Linda. Hún segir að æ fleiri taki upp sím- ann og athugi stöðuna í stað þess að panta á netinu. Sérstaklega þeir sem séu að stoppa lengi hér á landi. Það Meirihluti farþega með Norrænu er bólusettur Norræna gekkst undir and- litslyftingu á meðan Covid stóð yfir sem kostaði hátt í tvo milljarða. Linda segir að útkoman hafi reynst vel og eru farþegar ánægðir með breytingarnar. MYND/SMYRIL LINE Við erum búin að fá mikið af stórum pönt- unum í ágúst og sept- ember þannig að þetta sumartímabil sem hefur alltaf verið vin- sælast er að lengjast. Linda Gunn- laugsdóttir, framkvæmda- stjóri Smyril Line á Íslandi. benediktboas@frettabladid.is IÐNAÐUR Samtök iðnaðarins hafa skorað á sjö sveitarfélög að bjóða út viðhald, rekstur og LED-væðingu götulýsinga. Var það eftir úrskurð kærunefndar útboðsmála um að Reykjavíkurborg hafi brotið lög. Sveitarfélögin sem fengu bréf eru Reykjavík, Akranes, Kópavogur, Garðabær, Mosfellsbær, Hafnar- fjörður og Seltjarnarnes. Hafnfirð- ingar brugðust strax við enda á að LED-væða bæinn. Í bréfi SI til Reykjavíkurborgar er sagt brýnt að brugðist sé hratt við og strax hafist handa við útboðið. Þá er rakið hvernig samtökin haf i engar upplýsingar fengið frá borginni og því þurft að reka málið fyrir úrskurðarnefndinni. Samkvæmt gögnum frá borginni má áætla að á næstu fimm árum nemi kostnaður við rekstur, við- hald og LED-væðingu götulýsingar um 2,8 milljörðum króna. Samtök iðnaðarins segja að úrskurðurinn hafi breiða skírskotun og sé fordæmisgefandi fyrir önnur sveitarfélög. n Telja að LED-væðingin sé útboðsskyld Led-ljósastaurar við Hringbraut. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR arnartomas@frettabladid.is NEPAL Uppboðshúsið Bonhams í Frakklandi hefur dregið fornmuni úr sölu sem stolið var úr nepölsku hofi fyrir fjörutíu árum. Umræddir munir eru fimm 600 ára gamlar styttur af guðum úr hindúatrú sem voru hluti af helgi- mynd fyrir ofan innganginn við Taleju-hofið í borginni Patan í Nepal. Alls voru tólf styttur rifnar úr höggmyndinni á áttunda og níunda áratugnum. Ætlunin var að munirnir yrðu hluti af uppboði í vikunni, en þeir voru dregnir til baka eftir að fjöl- miðlar í Nepal greindu frá málum. Í kjölfarið krafðist utanríkisráðu- neyti Nepal þess að mununum yrði skilað heim. Ekki er vitað hvar hinar sjö stytt- urnar úr helgimyndinni eru niður komnar, en eftir að stytturnar fimm voru dregnar úr uppboðinu hafa vonir aukist um að þeim verði skilað þar sem ekki verður hægt að selja þær opinberlega. n Nepalir krefja Frakka um helgigripi Hofið sem hýsti forngripina stendur við Darbar-torg í Patan. sé breyting frá því fyrir Covid þegar margir nýttu sér internetið til að klára sína pöntun. „Við finnum það á ferðaskrifstofunum okkar erlendis og líka hjá þeim sem eru að fara frá Íslandi með skipinu – þeir þurfa mikið að ræða málin. Svo breytist það kannski aftur.“ Stutt er síðan að Norræna gekkst undir allsherjar andlitslyftingu. Útgerð skipsins ákvað að nýta tím- ann í faraldrinum til að gera breyt- ingar á skipinu fyrir tvo milljarða króna, bætti við káetum, veitinga- stað og heilli hæð svo fátt eitt sé nefnt. „Maður sér það og finnur að það er mikil gleði með skipið. Fólk er að njóta þess enn betur að ferðast með skipinu. Þótt við séum búin að bæta við heilli hæð er skipið enn stöðugt og fínt þannig að við erum mjög ánægð með breytingarnar og spennt fyrir komandi tímum. Ég var einmitt að heyra í okkar fólki í Færeyjum og það er svolítið að gerast það sem okkur grunaði. Ferðatímabilið er að lengjast út á haustið. Við erum búin að fá mikið af stórum pöntunum í ágúst og september þannig að þetta sumar- tímabil sem hefur alltaf verið vin- sælast er að lengjast. Það eru líka komnar fínar bókanir í september og október þannig að ég spái því að við eigum örugglega eftir að rétta úr kútnum ágætlega hratt hvað varðar fjölda ferðamanna,“ segir Linda. Farþegar með Norrænu mega nota siglingartímann sem sóttkví. Allir eru skimaðir áður en þeir fara um borð. n 10 Fréttir 5. júní 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.