Fréttablaðið - 05.06.2021, Page 18

Fréttablaðið - 05.06.2021, Page 18
Þorlákshöfn fagnar því um þessar mundir að sjötíu ár  eru frá því  staðurinn byrjaði að byggjast upp sem þéttbýli. Fram að því hafði í Þorlákshöfn verið bónda­ bær og verstöð þangað sem margir komu úr sveitunum til að vera yfir vertíðina. „Þegar ákvörðun var tekin um að byggja hér höfn þá sá fólk tækifæri í því að taka þátt í uppbyggingu á þessu nýja þorpi og hingað flykktist að fólk, margir úr Selvogi og öðrum stöðum úr Árnessýslu, en líka frá ýmsum öðrum stöðum á landinu,“ segir Ása Berglind Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri á menningarsviði Ölfuss. Ása segir að ákveðið hafi verið að fagna afmælinu vel og innilega um leið og það færi að létta á ástandinu vegna heimsfaraldursins og nú um helgina verði farið af stað af krafti. Veisluhöld allt árið „Sérstök afmælisnefnd var sett saman og verkefnastjóri ráðinn og það er bæði Sveitarfélagið Ölfus og fyrirtæki sem tengjast því, sem standa að hátíðinni.“ Stefnt var á að halda veislu fyrstu helgi hvers mánaðar allt afmælis­ árið og segir Ása að upphitun hafi verið um páskahelgina. „Þegar það var ljóst að það stefndi í aðra ein­ angrunarpáska settum við saman spurningakeppni með afmælisívafi fyrir alla fjölskylduna. Hún fór fram í gegnum beint streymi og fjölskyldur tóku þátt í gegnum forritið kahoot.“ Nú með nýtilkominni rýmkun á samkomutakmörkunum er fram undan fyrsta afmælishelgin af mörgum en afmælisnefndin er að undirbúa hátíðahöld fyrstu helgi hvers mánaðar út árið. „Þar verða ólíkir viðburðir þar sem unnið er bæði með söguna, mannlífið og fjölbreytileika sam­ félagsins hér í Þorlákshöfn og svo auðvitað líka aðkeypt skemmti­ atriði í bland. Það má segja að hápunktur afmælishátíðarinnar verði þegar bæjarhátíðin okkar, Hamingjan við hafið, er haldin 3.–8. ágúst,“ segir Ása. Brottfluttir koma í heimsókn Hún segist finna vel fyrir eftirvænt­ ingu bæjarbúa. „Enda margir orðnir langeygir eftir því að njóta þess að hitta annað fólk, fara á tónleika og skemmta sér. Við erum ekki búin að tilkynna alla afmælisdagskrána en það verður gert á næstu dögum og alveg víst að fólk hlakkar til þess að sjá hvað nefndin hefur sett saman. En við óskuðum í upphafi eftir hug­ myndum frá íbúum, unglingaráði og nemendum í grunnskólanum og það er mjög gaman að segja frá því að fjölmargar hugmyndir rata í dagskrána. Svo það má með sanni segja að margir hafa komið að gerð afmælisdagskrárinnar. Það sem er líka svo skemmtilegt við hátíðahöld eins og þessi er að fá brottf lutta Þorlákshafnarbúa í heimsókn og ég er alveg viss um að margir eiga eftir að heimsækja sinn gamla heimabæ og fagna afmælinu með okkur. Þar fyrir utan eru auð­ vitað allir velkomnir í afmælisveislu í hamingjuna í Þorlákshöfn.“ Sjómannadagsgleði alla helgina Nú um helgina verður sjómanna­ deginum fagnað bæði laugardag og sunnudag. Hamingjunni fagnað alla helgina og út árið Hátíðarhöld verða alla helgina í Þorlákshöfn í tilefni sjómannadagsins á sunnudaginn. MYND/AÐSEND Tónlistar- maðurinn Jónas Sigurðsson er einn af brott- fluttum sonum Þorlákshafnar en hér má sjá hann skemmta á Hátíð hafsins í sínum gamla heimabæ. Ungir sem aldnir skemmta sér saman í Skrúðgarðinum. Keppt er í sjóboðsundi um helgina. Björk Eiðsdóttir bjork @frettabladid.is Sjómannadagurinn er nú á sunnudaginn og þó Hátíð hafsins hafi verið frestað í höfuðborginni slá nágranna­ bæjarfélögin ekki slöku við og verður til að mynda mikið um dýrðir alla helgina í Þorláks­ höfn. „Á laugardaginn verður skemmti­ leg dagskrá fyrir alla fjölskylduna við bryggjuna þar sem keppt verður í sjóboðsundi og koddaslag og það verður líka hægt að prófa sjóbretti og hlaupabraut í höfninni. Þá verður söngkeppni barnanna, hoppukast­ alar og okkar frábæra körfubolta­ félag selur humslur sem allir verða að smakka." Aðspurð út í humsl­ urnar útskýrir Ása að það sé humar í pylsubrauði með hvítlaukssósu. Á sunnudaginn koma bæjarbúar saman í hádeginu í Skrúðgarðinum til að grilla pylsur, og þar verður ýmislegt um að vera eins og laser tag, hoppukastalar, harmónikku­ tónlist, sögur af sjó og landi og söngatriði. Þá er líka björgunar­ sveitin Mannbjörg með sitt árlega kaffihlaðborð. Síðast en ekki síst verða í gangi bílskúrssölur um allan bæ um helgina, þar sem íbúar bjóða til sölu alls kyns varning sem þarf nýja eigendur og einnig verður blómamarkaður í Skrúðgarðinum.“ Brimbretti vinsæl Gamli útgerðarbærinn hefur tölu­ vert breyst undanfarna áratugi og segir Ása þá breytingu vissulega endurspeglast í hátíðahöldum í kringum sjómannadaginn. „Nú er minna um það að sjómenn séu að keppa sín á milli í kappróðri og öðru slíku eins og var áður fyrr og í staðinn taka allir þátt og fagna þannig sjómönnum og þeirra fjöl­ skyldum sem hafa byggt upp okkar frábæra bæ. Brimbretti í höfninni er til dæmis í takt við þróun bæjarins, en það er sístækkandi sport sem hvergi er betra að stunda en í fjör­ unum við Þorlákshöfn,“ segir hún að lokum. Nánari upplýsingar um hátíða­ höldin er að finna á Facebook­síð­ unni Hamingjan við hafið. Þar fyrir utan eru auðvitað allir vel- komnir í afmælisveislu í hamingjuna í Þorláks- höfn. HELGIN 5. júní 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.