Fréttablaðið - 05.06.2021, Side 26
Í aldanna raðir hefur neysla á
rauðrófum verið talin geta haft
ýmis heilsueflandi áhrif og notkun
hennar má rekja allt að 2000 ár
aftur í tímann, til Rómverja. Áhugi
á heilsueflandi eiginleikum rauð-
rófunnar er sífellt að aukast og þá
sérstaklega hjá íþróttafólki, vegna
þess að rauðrófan inniheldur nítr-
öt sem eru sannkölluð ofurfæða
sem íþróttafólk sækir gjarnan í.
Rauðrófuhylkin hentug lausn
Fæstir eiga safavél heima hjá sér og
enn þá færri nenna að standa í því
að pressa sér hreinan rauðrófusafa
á hverjum degi, þar sem því fylgir
mikið uppvask og litarefnið úr
safanum á það til að lita allt sem
það kemst í tæri við.
Aukið úthald og kraftur
Bjarni Jakob Gunnarsson þrí-
þrautarkappi deilir með okkur
reynslu sinni af náttúrulegu rauð-
rófuhylkjunum frá Natures Aid.
Bjarni er 35 ára verkfræðingur
og tveggja barna faðir, hann stund-
aði fótbolta frá fjögurra ára aldri
en lauk ferli sínum árið 2015 og hóf
að æfa Cross fit í kjölfarið. Í dag
stundar Bjarni hins vegar þríþraut
af kappi og er á sínu öðru keppnis-
tímabili. Hann kynntist gagnsemi
rauðrófunnar í gegnum æfinga-
félaga sína í þríþrautinni sem
höfðu verið að neyta hylkjanna í
kringum æfingar og keppnir með
frábærum árangri. Bjarni ákvað
því að prófa rauðrófusafa en færði
sig fljótt yfir í hylkin frá Natures
Aid vegna bragðsins og litarins af
safanum. Bjarni segir jafnframt
að rauðrófuhylkin frá Natures Aid
veiti honum aukinn kraft, hann sé
orkumeiri og finnist hann afkasta
mun meira á æfingum samhliða
notkun hylkjanna. Hann segir í
framhaldi að hylkin séu þægileg í
notkun og hentugt sé að innbyrða
2 hylki daglega eins og ráðlagt
er. Bjarni tekur hylkin alltaf inn
á sama tíma dags daglega, 2-3
tímum fyrir æfingu og finnur hann
mikinn mun á sér eftir notkun og
segist hafa fulla trú á bætiefninu.
Áhrifin leyna sér ekki
Bjarni tekur fram að eftir að hann
fór að innbyrða hylki í stað safans
fyrir æfingar hafi hann fengið
ýmsar fyrirspurnir, sérstaklega
frá íþróttafólki. Hann átti meðal
annars samtal við tvo einstaklinga
sem neyta að sama skapi tiltekinna
hylkja, sá fyrri stundar maraþon-
hlaup og sá seinni spilar knatt-
spyrnu í 1. deild karla og mæltu
þeir báðir: „Ég hef aldrei verið
orkumeiri en síðan ég byrjaði að
taka inn hylkin og finn ég mikinn
mun á mér á löngum æfingum“.
Bjarni mælir hiklaust með rauð-
rófuhylkjunum frá Natures Aid
fyrir íþróttafólk, sérstaklega fyrir
þá sem vilja bæta árangur sinn á
æfingum og í keppnum.
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Rauðrófuhylkin frá Natures Aid
eru 100% náttúruleg og án allra
aukefna. Auðvelt er að opna hylkin
og bæta duftinu út í heilsudrykki
eða grautinn.
„Ég kynntist rauðrófunni
í gegnum þríþrautina og
langaði að prófa. Rauðrófu-
duftið frá Natures Aid veitir
mér aukinn kraft og orku
og mér finnst ég afkasta
mun meira á æfingum en
venjulega, ég hef fulla trú
á þessu bætiefni. Einnig er
frábær kostur að ég finn
almennt fyrir minni kulda í
líkamanum þegar ég tek inn
rauðrófuhylkin,“ segir Bjarni
Jakob.
Ég tek hylkin alltaf
inn á sama tíma
dags, 2-3 klukkustund-
um fyrir æfingu, hvort
sem það er fyrir erfiðar
æfingar eða ekki. Ég
mæli með hylkjunum
fyrir alla, sérstaklega
íþróttafólk.
Bjarni Jakob Gunnarsson.
100% náttúruleg innihaldsefni
Rauðrófur eru af sömu plöntuætt
og spínat og tilheyra tegundinni
Beta vulgaris. Rauðrófur eru sneisa-
fullar af næringar- og plöntuefnum
og innihalda meðal annars ríku-
legt magn af járni, A-, B6- og C-
vítamíni, fólínsýru, magnesíum og
kalíum. Þar að auki innihalda þær
góð, flókin kolvetni, trefjar og öflug
andoxunarefni. Hins vegar eru ekki
allir jafn hrifnir af bragðinu af rauð-
rófunni eða safanum og því er rauð-
rófuduft í hylkjum góð lausn til að
bæta þessari vinsælu ofurfæðu inn
í daglega rútínu. Að auki er auðvelt
að opna hylkin og bæta duftinu út
í heilsudrykki eða grautinn. Rauð-
rófuhylkin frá Natures Aid eru 100%
náttúruleg og án allra aukefna. Eitt
hylki jafngildir 4.620 mg af þurrk-
aðri rauðrófu. Mælt er með að inn-
byrða 2 hylki á dag með mat sem
samsvarar 9.240 mg af þurrkaðri
rauðrófu. n
Þar sem að talið er að nítröt
í rauðrófum hafi áhrif á blóð-
þrýsting ættu þeir sem hafa lágan
blóðþrýsting eða taka blóðþrýst-
ingslyf að ráðfæra sig við lækni
áður en þeir bæta rauðrófum við
mataræði sitt.
Inulin eru vatnsleysanlegar trefjar sem bæta meltinguna,
efla fjölgun vinveittra gerla í þörmunum og
hjálpa til við að koma reglu á hægðirnar.
Bragðlaust og einfalt
í notkunGóð melting - lykill að góðri heilsu
Inulin fyrir meltinguna
Prófaðu að setja teskeið af Inulín trefjum í vatnsglas
eða út í kaffibollann. Einnig má strá Inulíni yfir
morgungrautinn eða bæta út í morgunþeytinginn.
Fæst i Krónunni og apótekum.
2 kynningarblað A L LT 5. júní 2021 LAUGARDAGUR