Fréttablaðið - 05.06.2021, Page 26

Fréttablaðið - 05.06.2021, Page 26
Í aldanna raðir hefur neysla á rauðrófum verið talin geta haft ýmis heilsueflandi áhrif og notkun hennar má rekja allt að 2000 ár aftur í tímann, til Rómverja. Áhugi á heilsueflandi eiginleikum rauð- rófunnar er sífellt að aukast og þá sérstaklega hjá íþróttafólki, vegna þess að rauðrófan inniheldur nítr- öt sem eru sannkölluð ofurfæða sem íþróttafólk sækir gjarnan í. Rauðrófuhylkin hentug lausn Fæstir eiga safavél heima hjá sér og enn þá færri nenna að standa í því að pressa sér hreinan rauðrófusafa á hverjum degi, þar sem því fylgir mikið uppvask og litarefnið úr safanum á það til að lita allt sem það kemst í tæri við. Aukið úthald og kraftur Bjarni Jakob Gunnarsson þrí- þrautarkappi deilir með okkur reynslu sinni af náttúrulegu rauð- rófuhylkjunum frá Natures Aid. Bjarni er 35 ára verkfræðingur og tveggja barna faðir, hann stund- aði fótbolta frá fjögurra ára aldri en lauk ferli sínum árið 2015 og hóf að æfa Cross fit í kjölfarið. Í dag stundar Bjarni hins vegar þríþraut af kappi og er á sínu öðru keppnis- tímabili. Hann kynntist gagnsemi rauðrófunnar í gegnum æfinga- félaga sína í þríþrautinni sem höfðu verið að neyta hylkjanna í kringum æfingar og keppnir með frábærum árangri. Bjarni ákvað því að prófa rauðrófusafa en færði sig fljótt yfir í hylkin frá Natures Aid vegna bragðsins og litarins af safanum. Bjarni segir jafnframt að rauðrófuhylkin frá Natures Aid veiti honum aukinn kraft, hann sé orkumeiri og finnist hann afkasta mun meira á æfingum samhliða notkun hylkjanna. Hann segir í framhaldi að hylkin séu þægileg í notkun og hentugt sé að innbyrða 2 hylki daglega eins og ráðlagt er. Bjarni tekur hylkin alltaf inn á sama tíma dags daglega, 2-3 tímum fyrir æfingu og finnur hann mikinn mun á sér eftir notkun og segist hafa fulla trú á bætiefninu. Áhrifin leyna sér ekki Bjarni tekur fram að eftir að hann fór að innbyrða hylki í stað safans fyrir æfingar hafi hann fengið ýmsar fyrirspurnir, sérstaklega frá íþróttafólki. Hann átti meðal annars samtal við tvo einstaklinga sem neyta að sama skapi tiltekinna hylkja, sá fyrri stundar maraþon- hlaup og sá seinni spilar knatt- spyrnu í 1. deild karla og mæltu þeir báðir: „Ég hef aldrei verið orkumeiri en síðan ég byrjaði að taka inn hylkin og finn ég mikinn mun á mér á löngum æfingum“. Bjarni mælir hiklaust með rauð- rófuhylkjunum frá Natures Aid fyrir íþróttafólk, sérstaklega fyrir þá sem vilja bæta árangur sinn á æfingum og í keppnum. Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Rauðrófuhylkin frá Natures Aid eru 100% náttúruleg og án allra aukefna. Auðvelt er að opna hylkin og bæta duftinu út í heilsudrykki eða grautinn. „Ég kynntist rauðrófunni í gegnum þríþrautina og langaði að prófa. Rauðrófu- duftið frá Natures Aid veitir mér aukinn kraft og orku og mér finnst ég afkasta mun meira á æfingum en venjulega, ég hef fulla trú á þessu bætiefni. Einnig er frábær kostur að ég finn almennt fyrir minni kulda í líkamanum þegar ég tek inn rauðrófuhylkin,“ segir Bjarni Jakob. Ég tek hylkin alltaf inn á sama tíma dags, 2-3 klukkustund- um fyrir æfingu, hvort sem það er fyrir erfiðar æfingar eða ekki. Ég mæli með hylkjunum fyrir alla, sérstaklega íþróttafólk. Bjarni Jakob Gunnarsson. 100% náttúruleg innihaldsefni Rauðrófur eru af sömu plöntuætt og spínat og tilheyra tegundinni Beta vulgaris. Rauðrófur eru sneisa- fullar af næringar- og plöntuefnum og innihalda meðal annars ríku- legt magn af járni, A-, B6- og C- vítamíni, fólínsýru, magnesíum og kalíum. Þar að auki innihalda þær góð, flókin kolvetni, trefjar og öflug andoxunarefni. Hins vegar eru ekki allir jafn hrifnir af bragðinu af rauð- rófunni eða safanum og því er rauð- rófuduft í hylkjum góð lausn til að bæta þessari vinsælu ofurfæðu inn í daglega rútínu. Að auki er auðvelt að opna hylkin og bæta duftinu út í heilsudrykki eða grautinn. Rauð- rófuhylkin frá Natures Aid eru 100% náttúruleg og án allra aukefna. Eitt hylki jafngildir 4.620 mg af þurrk- aðri rauðrófu. Mælt er með að inn- byrða 2 hylki á dag með mat sem samsvarar 9.240 mg af þurrkaðri rauðrófu. n Þar sem að talið er að nítröt í rauðrófum hafi áhrif á blóð- þrýsting ættu þeir sem hafa lágan blóðþrýsting eða taka blóðþrýst- ingslyf að ráðfæra sig við lækni áður en þeir bæta rauðrófum við mataræði sitt. Inulin eru vatnsleysanlegar trefjar sem bæta meltinguna, efla fjölgun vinveittra gerla í þörmunum og hjálpa til við að koma reglu á hægðirnar. Bragðlaust og einfalt í notkunGóð melting - lykill að góðri heilsu Inulin fyrir meltinguna Prófaðu að setja teskeið af Inulín trefjum í vatnsglas eða út í kaffibollann. Einnig má strá Inulíni yfir morgungrautinn eða bæta út í morgunþeytinginn. Fæst i Krónunni og apótekum. 2 kynningarblað A L LT 5. júní 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.