Fréttablaðið - 05.06.2021, Page 34
Glöggir muna kannski eftir
því óheppilega atviki þegar
sanddæluskipið Perla sökk í
Reykjavíkurhöfn að morgni
2. nóvember 2015.
johannamaria@frettabladid.is
Að sögn Sigurðar Stefánssonar, eig-
anda Köfunarþjónustu Sigurðar,
gerðist það eftir röð mistaka en
skipið sökk á hálftíma þennan
örlagaríka morgun eftir að hafa
verið sleppt úr slipp við Ægisgarð.
Þegar Perla sökk
Perla var smíðuð árið 1964 í Vestur-
Þýskalandi og var í eigu útgerðar-
innar Björgunar ehf. Í atvikalýsingu
í rannsóknarskýrslu sem unnin var
vegna slyssins kemur fram:
„Við sjósetningu Perlu úr
slippnum um kl. 10.30 var dráttar-
báturinn Magni festur við skipið
og tók hafnsögumaður við stjórn
aðgerða að færa skipið að bryggju.
Þrír menn voru um borð í Perlu, vél-
stjóri skipsins og tveir starfsmenn
Stálsmiðjunnar Framtaks. Fljótlega
eftir að Perla flaut úr sleðanum
kom stb halli á skipið en haldið var
áfram að flytja það til legu á austan-
verðum Ægisgarði ... Áhöfnin á
Magna fékk þær upplýsingar að lek-
inn væri einskorðaður við lestina
og því talin lítil hætta á ferðum.“
Hallinn jókst enn
En hallinn hélt áfram að aukast
og var ákveðið að draga skipið
aftur að bryggju. Þá var óskað
eftir dælum til að dæla úr skipinu
um leið og það kæmi að bryggju,
en það var um seinan. Stuttu síðar
var skipið sest að framan og aftur-
hlutinn byrjaður að sökkva.
Samkvæmt vefsíðu Faxaflóa-
hafna mætti Slökkvilið höfuðborg-
arsvæðisins á vettvang til að dæla
sjó úr skipinu en ekki tókst nægi-
lega vel til. Mennirnir þrír sem voru
um borð komu klakklaust í land,
en ætla má að eitthvert stolt hafi
þó verið sært í staðinn. Við nánari
athugun kom í ljós að ástæðan fyrir
því að skipið sökk hefði meðal ann-
ars verið blöndunarlokinn, sem var
opinn og átti að vera lokaður. Hann
var staðsettur fremst á skipinu og
notaður til að taka sjó inn í lestina
til að auðvelda losun með dælingu.
Það vakti athygli þegar Perla var
sokkin við bryggjuna að hvorugur
gúmmíbjörgunarbátanna sem
festir voru á skipið höfðu skilað sér
upp á yfirborðið en þeir voru með
sérstökum Olsen-sleppibúnaði
með Berwyn-sjósleppimembrum.
„Við mælingu kom í ljós að þá var
dýpi niður á skel gúmmíbjörgunar-
bátsins stjórnborðsmegin 2,3 m.
Báðir sjósleppilokarnir virkuðu
síðar þegar dýpið hafði aukist á
flóði og búnaðurinn kominn á um
4 m dýpi. Sjósleppibúnaðurinn
var með gildistíma til 2018“, segir í
skýrslunni.
Nokkrar tilraunir
Köfunarþjónusta Sigurðar ásamt
starfsmönnum Björgunar hófust
handa við að loka skipinu til að
koma í veg fyrir að olía læki úr því
og til að undirbúa að hægt yrði að
lyfta því. „Hátt í 12 þúsund lítrar af
olíu voru í skipinu og 800 lítrar af
glussa,“ segir Sigurður og var því rík
ástæða að koma í veg fyrir að það
allt læki út í sjó.
Að sögn Sigurðar var nokkur
vandi að ná skipinu upp og þurfti til
þess nokkrar atrennur. Í skýrslunni
kemur fram að þann 4. nóvember
höfðu kafarar lokað mannopum
og hurðum. Þá hafði dælubúnaði
verið komið fyrir á tveimur stöðum
á skipinu. „Við dælingu reyndist
skipið einungis lyftast að aftan og
þrátt fyrir ýmsar tilraunir næstu
daga tókst ekki að ná skipinu á flot,“
segir í skýrslunni.
Dælt upp úr Perlu
Á hádegi mánudagsins 16. nóvem-
ber var hafist handa við að dæla
sjó úr Perlu eftir mikinn undir-
búning dagana á undan. „Skipið
lá á hafsbotni í tvær vikur áður en
við náðum að dæla úr því sjó og ná
því upp. Þegar svona stór verkefni
koma á borð hjá okkur fáum við
skipaverkfræðinga til þess að
vinna með okkur og að þessu sinni
unnum við með Navis til þess að
reikna út stöðugleika skipsins,“
segir Sigurður. Verkefnið gekk
hægar en gert var ráð fyrir, aðallega
vegna norðanstinnings sem seink-
aði aðgerðum. Að kvöldi mánudags
16. nóvember tókst svo loks að ná
Perlu af botni Reykjavíkurhafnar
en í kjölfarið var skipið orðið ónýtt
og því ekki sjósett á ný. n
Perlan sem var á hafsbotni
Kafari býr sig undir að kafa niður að skipinu þann 16. nóvember 2015. Síðar
um daginn var skipið komið upp og þurrausið af sjó. Myndir/aðsendar
Dæla þurfti töluvert af sjó úr skipinu
til að það lyftist upp af hafsbotni.
Óvenjuleg en óskaplega
skemmtileg hátíðarhöld fara
fram við Flensborgarhöfn
í Hafnarfirði á sjómanna-
daginn.
„Hátíðarhöldin í Hafnarfirði
verða með óhefðbundnu sniði á
sjómannadaginn í ár vegna sam-
komutakmarkana sem enn eru í
gildi,“ segir Andri Ómarsson, verk-
efnastjóri menningar- og markaðs-
mála hjá Hafnarfjarðarbæ.
„Þrátt fyrir það hvetjum við
Hafnfirðinga og gesti þeirra til að
gera sér ferð niður að höfn og njóta
þess sem höfnin, sem bærinn er
kenndur við, hefur upp á að bjóða.“
Hátíðardagskráin lokkar og
laðar, eins og hafið.
„Þar má nefna fiskasýningu Haf-
rannsóknastofnunar sem verður á
svæðinu fyrir framan höfuðstöðv-
arnar á Háabakka. Þar verður hægt
að skoða sýnishorn af fiskum og
hryggleysingjum, allt frá algengum
nytjafiskum eins og þorski og ýsu,
til sjaldséðari tegunda eins og
tunglfisks og bjúgtanna,“ upplýsir
Andri.
Í hlýlegum verslunum og lista-
galleríum við höfnina verður hægt
að nálgast hönnun og handverk
hafnfirskra listamanna.
„Vinalegir veitingastaðir og
kósí kaffihús í nágrenni hafn-
firsku hafnarinnar eru rómuð
fyrir gestrisni og góðar veitingar
og Litli-ratleikur Hafnarfjarðar
leiðir áhugasama um spennandi
staði í nágrenni hafnarinnar sem
er tilvalið að skoða,“ segir Andri.
Kraftakeppni og kappróður
Það verður sannkallað ævintýri
að fagna sjómannadeginum með
heimsókn á Flensborgarhöfn.
„Við tökum daginn snemma
og drögum fána að húni klukkan
átta að morgni sjómannadags á
hátíðarsvæði við höfnina. Klukkan
tíu leikur Lúðrasveit Hafnarfjarðar
við Hrafnistu og blómsveigur
verður lagður að minnisvarða um
horfna sjómenn við Víðistaða-
kirkju klukkan 10.30. Klukkan 11
verður sjómannamessa, heiðrun
sjómanna og ferming í Fríkirkj-
unni,“ upplýsir Andri.
Dagskrá við Flensborgarhöfn
hefst klukkan 11 með fiskasýningu
Hafró á Háabakka og krafta-
keppnin Sterkasti maður á Íslandi
2021 hefst á sama tíma á Óseyrar-
bryggju.
„Þar munu aflraunamenn etja
kappi við hrikalegar aflraunir
sem byrja með trukkadrætti
klukkan 11, þá tekur við drumba-
lyfta klukkan 13 og blönduð grein
klukkan 16,“ segir Andri um ofur-
spennandi keppnina.
Opið hús verður hjá Siglinga-
klúbbnum Þyt frá klukkan 13 til
17 og verða kajakar og árabátar til-
tækir sem og búningsaðstaða fyrir
þá sem blotna. Kappróðrarkeppni
verður frá klukkan 13 til 14.
Þorri og Þura í Hellisgerði
Hafnfirskir listamenn opna vinnu-
stofur fyrir gestum og gangandi á
sjómannadaginn, eins og verslanir
og veitingastaðir.
„Þar má nefna opið hús í brúðar-
kjólabúðinni Loforði, Sign, Gáru
handverki og sýningarlok hjá
málaranum við höfnina, Soffíu
Sæmundsdóttur. Þá verður opið hús
í Íshúsi Hafnarfjarðar sem saman-
stendur af þrjátíu verkstæðum og
vinnustofum einyrkja og minni fyr-
irtækja í skapandi greinum. Flóran
er afar fjölbreytt og meðal annars er
í húsinu stunduð keramíkhönnun,
myndlist, vöru- og textílhönnun,
ritlist, tréskipasmíði og gullsmíði,“
lýsir Andri.
Kaffihlaðborð Kænunnar verður
á sínum stað með dýrindis brauð-
tertum og tilheyrandi, frá klukkan
13 til 17. Þá verður fjölskylduvið-
burðurinn Þorri og Þura í Hellis-
gerði frá klukkan 14 til 15.30, og
Margrét Arnardóttir harmonikku-
leikari og Gunnella Hólmarsdóttir
leikkona flytja þjóðlega tóna víðs
vegar um bæinn.
„Í sex húsum Byggðasafns
Hafnarfjarðar ber margt fróð-
legt og forvitnilegt fyrir augu, og
nýrri ljósmyndasýningu hefur
verið komið fyrir á Strandstígnum
um Bæjarútgerð Hafnarfjarðar.
Á sýningunni „Þannig var ...“ í
Pakkhúsinu á Vesturgötu 6 er saga
sjávarþorpsins Hafnarfjarðar
rakin frá landnámi til okkar daga,
og í Bookless Bungalow á Vestur-
götu 32 er sýning um tímabil
erlendu útgerðanna á fyrri hluta
20. aldar á heimili Bookless-
bræðra,“ útskýrir Andri þar sem
hann skoðar sig um í Siggubæ á
Kirkjuvegi 10.
„Siggubær er varðveittur sem
sýnishorn af heimili sjómanna í
Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar.
Þar er hægt að upplifa og kynnast
því hvernig alþýðufólk í bænum
bjó á þeim tíma.“ n
Dagskrá getur breyst án fyrirvara
og viðburðir bæst við eða frestast.
Gestir eru beðnir um að virða
fjöldatakmörk á viðburðasvæð
um, tveggja metra nálægðarmörk,
huga að einstaklingsbundnum
smitvörnum og nota andlits
grímur þegar við á. Sjá nánar á
hafnarfjordur.is
Sterkasti maður Íslands, fiskar og brúðarskart
Frá vinstri: Karel
Ingvar Karels
son, sem verið
hefur umsjónar
maður sjó
mannadagsins í
Hafnarfirði ára
tugum saman,
og Svanhildur
Egilsdóttir, sem
sér um fiska
sýninguna hjá
Hafró og Andri
Ómarsson.
FrÉTTaBLaðið/
anTOn
Sjómannadags
hátíðarhöldin í
Hafnarfirði fara
fram á Flens
borgarhöfn,
fyrir framan
litríku og fal
legu húsin hjá
Hafrannsókna
stofnun.
Sigurður
Stefánsson,
eigandi Köf
unarþjónustu
Sigurðar, segist
alltaf muna
eftir björgunar
störfum Perlu.
FrÉTTaBLaðið/GVa
6 kynningarblað 5. júní 2021 LAUGARDAGURSjómannadagurinn