Fréttablaðið - 05.06.2021, Side 45
Tækniskólinn leitar að kennurum
í vélstjórnargreinum
Störfin felast í kennslu véltækni- og/ eða rafmagnsgreina.
Umsækjendur þurfa að vera með menntun í vélfræði, á sviði vélstjórnar,
vél-/ rafvirkjunar eða iðn-/ tækni-/ verkfræði á véla- eða rafmagnssviði og
reynslu úr faginu sem nýtist í starfi.
Nánari upplýsingar á tskoli.is
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
ai16228033695_velstjorn.pdf 1 6/4/2021 10:42:51 AM
Útlendingastofnun leitar að fjármálastjóra til að leiða fjármál og rekstur stofnunarinnar.
Fjármálastjóri stýrir sviði fjármála og rekstrar sem er eitt af fjórum sviðum Útlendingastofnunar. Starf fjármálastjóra er umfangsmikið og krefjandi en helstu verkefni eru
fjárhagslegur rekstur, áætlanagerð, stefnumótun, samningagerð, húsnæðismál, innkaup, öryggismál og samskipti við ráðuneyti, stofnanir og fyrirtæki.
Fjármálastjóri Útlendingastofnunar þarf að búa yfir mikilli leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaði til að ná árangri í starfi. Auk þess að þarf fjármálastjóri að geta útbúið
verkferla, hafa mjög góða greiningarfærni, geta unnið undir álagi og hafa styrk til að taka ákvarðanir. Fjármálastjóri heyrir undir forstjóra Útlendingastofnunar.
Í boði er áhugavert starf á spennandi vinnustað sem er á fleygiferð í stafrænni vegferð. Hjá Útlendingastofnun starfar um 90 manna samhentur hópur á fjórum sviðum.
Útlendingastofnun leggur ríka áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og kost á fjarvinnu.
Stofnunin hefur undanfarin ár tekið þátt í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og er miðað við 36 stunda vinnuviku hjá öllu starfsfólki.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Dagleg fjármálastjórn
• Umsjón, ábyrgð og eftirfylgni með fjárhags- og rekstraráætlunum
• Gerð fjármálalegra stjórnendaupplýsinga
• Umsjón og ábyrgð á milli- og ársuppgjörum
• Kostnaðareftirlit
• Húsnæðis- og öryggismál stofnunar
• Samskipti við starfsfólk stofnunar og við ytri aðila
• Gerð og þróun verkferla
• Þátttaka í stefnumótun
• Starfa í samræmi við stefnur og markmið stofnunarinnar
• Stjórnun teymisvinnu
Hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtast í starfi, meistaragráða skilyrði
• Haldbær starfsreynsla af fagsviði fjármála
• Reynsla og þekking á áætlanagerð og uppgjörum
• Frábær greiningarhæfni og framsetning fjármálaupplýsinga
• Brennandi áhugi á stafrænum lausnum
• Skipulagshæfni og frumkvæði
• Mjög góð almenn tölvukunnátta
• Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Geta til að byggja upp öfluga liðsheild, vinna undir álagi og leiða umbótastarf
• Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og geta til að forgangsraða verkefnum
Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra.
Umsókn skal fylgja ferilskrá að hámarki 2 bls. ásamt mynd og kynningarbréfi sem er að hámarki 1 bls. á íslensku. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa
eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum ásamt einkunnum úr námi. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður
sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.
Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað er.
Starfshlutfall er 100% og um er að ræða ótímabundna ráðningu með þriggja mánaða reynslutíma.
Eingöngu er tekið við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Starfatorgs.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið, óháð kyni. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin.
Nánari upplýsingar veitir Birkir Hauksson, mannauðsstjóri – birkir@utl.is – 444-0900
Umsóknarfrestur er til og með 14/06/2021.
Fjármálastjóri
Fyrirtæki
ársins 2021
hagvangur.is