Fréttablaðið


Fréttablaðið - 05.06.2021, Qupperneq 45

Fréttablaðið - 05.06.2021, Qupperneq 45
Tækniskólinn leitar að kennurum í vélstjórnargreinum Störfin felast í kennslu véltækni- og/ eða rafmagnsgreina. Umsækjendur þurfa að vera með menntun í vélfræði, á sviði vélstjórnar, vél-/ rafvirkjunar eða iðn-/ tækni-/ verkfræði á véla- eða rafmagnssviði og reynslu úr faginu sem nýtist í starfi. Nánari upplýsingar á tskoli.is C M Y CM MY CY CMY K ai16228033695_velstjorn.pdf 1 6/4/2021 10:42:51 AM Útlendingastofnun leitar að fjármálastjóra til að leiða fjármál og rekstur stofnunarinnar. Fjármálastjóri stýrir sviði fjármála og rekstrar sem er eitt af fjórum sviðum Útlendingastofnunar. Starf fjármálastjóra er umfangsmikið og krefjandi en helstu verkefni eru fjárhagslegur rekstur, áætlanagerð, stefnumótun, samningagerð, húsnæðismál, innkaup, öryggismál og samskipti við ráðuneyti, stofnanir og fyrirtæki. Fjármálastjóri Útlendingastofnunar þarf að búa yfir mikilli leiðtogahæfni, frumkvæði og metnaði til að ná árangri í starfi. Auk þess að þarf fjármálastjóri að geta útbúið verkferla, hafa mjög góða greiningarfærni, geta unnið undir álagi og hafa styrk til að taka ákvarðanir. Fjármálastjóri heyrir undir forstjóra Útlendingastofnunar. Í boði er áhugavert starf á spennandi vinnustað sem er á fleygiferð í stafrænni vegferð. Hjá Útlendingastofnun starfar um 90 manna samhentur hópur á fjórum sviðum. Útlendingastofnun leggur ríka áherslu á að vinnustaðurinn sé fjölskylduvænn og að starfsandi sé til fyrirmyndar. Boðið er upp á góða vinnuaðstöðu og kost á fjarvinnu. Stofnunin hefur undanfarin ár tekið þátt í verkefninu um styttingu vinnuvikunnar og er miðað við 36 stunda vinnuviku hjá öllu starfsfólki. Helstu verkefni og ábyrgð • Dagleg fjármálastjórn • Umsjón, ábyrgð og eftirfylgni með fjárhags- og rekstraráætlunum • Gerð fjármálalegra stjórnendaupplýsinga • Umsjón og ábyrgð á milli- og ársuppgjörum • Kostnaðareftirlit • Húsnæðis- og öryggismál stofnunar • Samskipti við starfsfólk stofnunar og við ytri aðila • Gerð og þróun verkferla • Þátttaka í stefnumótun • Starfa í samræmi við stefnur og markmið stofnunarinnar • Stjórnun teymisvinnu Hæfniskröfur • Háskólapróf sem nýtast í starfi, meistaragráða skilyrði • Haldbær starfsreynsla af fagsviði fjármála • Reynsla og þekking á áætlanagerð og uppgjörum • Frábær greiningarhæfni og framsetning fjármálaupplýsinga • Brennandi áhugi á stafrænum lausnum • Skipulagshæfni og frumkvæði • Mjög góð almenn tölvukunnátta • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti • Geta til að byggja upp öfluga liðsheild, vinna undir álagi og leiða umbótastarf • Leiðtogahæfni og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum • Sjálfstæði í vinnubrögðum og geta til að forgangsraða verkefnum Um launakjör fer samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Umsókn skal fylgja ferilskrá að hámarki 2 bls. ásamt mynd og kynningarbréfi sem er að hámarki 1 bls. á íslensku. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum ásamt einkunnum úr námi. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna. Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað er. Starfshlutfall er 100% og um er að ræða ótímabundna ráðningu með þriggja mánaða reynslutíma. Eingöngu er tekið við umsóknum rafrænt í gegnum vefgátt Starfatorgs. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starfið, óháð kyni. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur. Öllum umsóknum verður svarað eftir að ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Birkir Hauksson, mannauðsstjóri – birkir@utl.is – 444-0900 Umsóknarfrestur er til og með 14/06/2021. Fjármálastjóri Fyrirtæki ársins 2021 hagvangur.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.