Fréttablaðið - 05.06.2021, Side 53

Fréttablaðið - 05.06.2021, Side 53
Suzuki bílar • Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • 568 5100 Sölumaður óskast í bílasöludeild Suzuki Leitum að vinnusömum, jákvæðum og metnaðar- fullum einstakling í bílasöludeild Suzuki. Hæfniskröfur: Reynsla í sölu á notuðum og nýjum bílum. Um er að ræða fullt starf og óskað er eftir því að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá fyrir 16. júní á netfangið umsokn@suzuki.is Embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu. Um er að ræða aðra af tveimur stoðskrifstofum ráðuneytisins. Helstu verkefni skrifstofunnar eru; samningar, innkaup á vöru og þjónustu í heilbrigðiskerfinu, sjúkratryggingar, lyf og lækningatæki, byggingaframkvæmdir, mönnun heilbrigðisþjónustu, úrvinnsla tölfræðiupplýsinga auk þess að framkvæma stefnu stjórnvalda og fylgja henni eftir með gerð lagafrumvarpa og reglugerða. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára í senn frá 1. ágúst 2021 Helstu verkefni og ábyrgð • Undirbyggja stefnumarkandi ákvarðanir ráðherra og móta stefnu stjórnvalda á sviði innviða heilbrigðisþjónustu. • Stýra daglegum verkefnum og starfsfólki skrifstofunnar. • Yfirumsjón með verkefnum er varða innviði heilbrigðisþjónustu. • Fylgja stefnu stjórnvalda eftir gagnvart þjónustuveitendum. • Þátttaka í nefndarstörfum og innlendu og erlendu samstarfi. • Samstarf við stofnanir og hagsmunaaðila. Menntunar- og hæfniskröfur: Skilyrði er að umsækjandi hafi; • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er áskilin. • Þekkingu á fjármálum hins opinbera. • Þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu. • Hæfni og reynslu til stefnumótunar. • Þekkingu og reynslu á sviði rekstrar og stjórnunar. • Mjög góða hæfni í mannlegum samskiptum. • Metnað og vilja til að ná árangri. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt hæfni í verkefnastjórnun. • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. • Góða kunnáttu í ensku og kunnáttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli. Þá er æskilegt að umsækjandi hafi þekkingu og reynslu á sviði heilbrigðismála. Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til heilbrigðisráðherra, sem skipar í embættið. Nefndin starfar skv. reglum nr. 393/2012 um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands og lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Áhugasamir einstaklingar, eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur. Umsókn skal skila rafrænt á netfangið hrn@hrn.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum. Starfshlutfall er 100% Umsóknarfrestur er til og með 21. júní 2021. Upplýsingar um embættið veitir Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri (asta.valdimarsdottir@hrn.is) sími 545 8700. Stjórnarráð Íslands Heilbrigðisráðuneytið Við leiðum fólk saman
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.