Fréttablaðið - 05.06.2021, Page 53
Suzuki bílar • Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • 568 5100
Sölumaður óskast
í bílasöludeild Suzuki
Leitum að vinnusömum, jákvæðum og metnaðar-
fullum einstakling í bílasöludeild Suzuki.
Hæfniskröfur:
Reynsla í sölu á notuðum og nýjum bílum.
Um er að ræða fullt starf og óskað er eftir því að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá fyrir
16. júní á netfangið umsokn@suzuki.is
Embætti skrifstofustjóra á skrifstofu
innviða heilbrigðisþjónustu
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti
skrifstofustjóra á skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu.
Um er að ræða aðra af tveimur stoðskrifstofum ráðuneytisins.
Helstu verkefni skrifstofunnar eru; samningar, innkaup á vöru og
þjónustu í heilbrigðiskerfinu, sjúkratryggingar, lyf og lækningatæki,
byggingaframkvæmdir, mönnun heilbrigðisþjónustu, úrvinnsla
tölfræðiupplýsinga auk þess að framkvæma stefnu stjórnvalda og fylgja
henni eftir með gerð lagafrumvarpa og reglugerða.
Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til fimm ára í senn frá 1. ágúst 2021
Helstu verkefni og ábyrgð
• Undirbyggja stefnumarkandi ákvarðanir ráðherra og móta stefnu
stjórnvalda á sviði innviða heilbrigðisþjónustu.
• Stýra daglegum verkefnum og starfsfólki skrifstofunnar.
• Yfirumsjón með verkefnum er varða innviði heilbrigðisþjónustu.
• Fylgja stefnu stjórnvalda eftir gagnvart þjónustuveitendum.
• Þátttaka í nefndarstörfum og innlendu og erlendu samstarfi.
• Samstarf við stofnanir og hagsmunaaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Skilyrði er að umsækjandi hafi;
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun er áskilin.
• Þekkingu á fjármálum hins opinbera.
• Þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu.
• Hæfni og reynslu til stefnumótunar.
• Þekkingu og reynslu á sviði rekstrar og stjórnunar.
• Mjög góða hæfni í mannlegum samskiptum.
• Metnað og vilja til að ná árangri.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt hæfni í
verkefnastjórnun.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Góða kunnáttu í ensku og kunnáttu í a.m.k. einu Norðurlandamáli.
Þá er æskilegt að umsækjandi hafi þekkingu og reynslu á sviði
heilbrigðismála.
Sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, mun meta hæfni
umsækjenda og skila greinargerð til heilbrigðisráðherra, sem skipar í
embættið. Nefndin starfar skv. reglum nr. 393/2012 um ráðgefandi nefndir
er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands og lög nr.
70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Áhugasamir einstaklingar, eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni.
Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi
þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi
uppfyllir hæfniskröfur. Umsókn skal skila rafrænt á netfangið hrn@hrn.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið
liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996, um auglýsingar á
lausum störfum, með síðari breytingum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21. júní 2021.
Upplýsingar um embættið veitir
Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri
(asta.valdimarsdottir@hrn.is) sími 545 8700.
Stjórnarráð Íslands
Heilbrigðisráðuneytið
Við
leiðum
fólk
saman