Þjóðmál - 01.12.2018, Side 5

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 5
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 3 Ritstjórnarbréf Það er vinsæll frasi um að leiðin til heljar sé vörðuð góðum ásetningi. Frasinn lýsir því hvernig einstaklingar, með góðum ásetningi, taka ákvarðanir eða framkvæma eitthvað án þess að vita eða sjá fyrir hvaða afleiðingar það hefur til lengri tíma. Mannkynssagan geymir mörg dæmi um þetta. Einstaklingar taka ákvarðanir sem byggja á þeirri þekkingu sem þeir búa yfir. Enn hefur ekki komið fram sá einstaklingur sem getur séð framtíðina fyrir, þó alltaf sé nóg til að svokölluðum eftiráspekingum. En sú þekking sem menn búa yfir hverju sinni er mikilvæg. Það er ekki síður mikilvægt að hún byggi á réttum upplýsingum og staðreyndum – en ekki tilfinningum eða öðrum hvötum. Hver ætlar að taka slaginn? Alla virka daga ársins starfa einstaklingar á launaskrá hjá hinu opinbera sem eru haldnir þeim misskilningi að þeim sé falið það hlutverk hér á jörðinni að taka ákvarðanir um líf okkar hinna. Í þeirra huga er ekki til það vandamál sem ekki má leysa með lögum og reglugerðum. Þessi þróun mun drepa alla framþróun og að lokum atvinnulíf. Þess vegna þarf atvinnulífið að axla ábyrgð á því að koma réttum upplýsingum á framfæri og tryggja að baráttunni fyrir frelsinu sé sinn.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.