Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 6

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 6
4 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 *** Það væri hægt að tala mikið og lengi um það hver sé ábyrgur fyrir því að koma réttum upplýsingum á framfæri. En við skulum halda okkur við stjórnmálin, því þar eru, því miður, stærstu ákvarðanirnar teknar. Stjórnmála- menn eru, að mestum hluta, eins og annað fólk. Þeir taka ákvarðanir sem oftast byggja á þeirri þekkingu sem þeir ýmist búa yfir eða þekkingu sem er mötuð ofan í þá af embættis mönnum. Alla virka daga ársins starfa einstaklingar á launaskrá hjá hinu opinbera sem eru haldnir þeim misskilningi að þeim sé falið það hlutverk hér á jörðinni að taka ákvarðanir um líf okkar hinna. Í þeirra huga er ekki til það vandamál sem ekki má leysa með lögum og reglugerðum. Það gengur stundum svo langt að það er óljóst hvort kemur á undan, reglurnar eða vanda- málin, líkt og með eggið og hænuna. *** Þessi ofurtrú á hið opinbera vald er alls- ráðandi. Of margir stjórnmálamenn, hvar sem þeir standa á hinu pólitíska litrófi, halda hægt sé að bæta heiminn með nýjum reglugerðum, stærra ríkisvaldi, auknum afskiptum af hagkerfinu og síðast en ekki síst opinberu fjármagni. *** En það er þetta með upplýsingarnar og þekkingu. Á þessum síðum hefur áður verið vikið að svonefndri baráttu stéttarfélaganna um þessar mundir. Sú barátta fer fram á grundvelli hugmyndafræði sósíalismans, svo einkennilegt sem það kann að hljóma í lok árs 2018 þegar vitað er að um 100 milljónir manna hafa fallið í valinn vegna þessarar sömu hugmyndafræði. Hér stendur ekki til rekja þær kröfur sem forystumenn stéttar- félaganna hafa lagt fram, bæði gagnvart atvinnulífinu og stjórnvöldum. Þess í stað má velta upp þeirri ábyrgð sem atvinnulífið ber á því að koma réttum upplýsingum á framfæri – og svo að það sé sagt hreint út, að berjast fyrir kapítalismanum. Í viðtali Þjóðmála við Dr. Eamonn Butler, framkvæmdastjóra Adam Smith-stofnunar- innar í London, sem birt var í sumarhefti ritsins, var hann meðal annars spurður að því hvort að einstaklingar í atvinnulífinu væru of ragir við að tala um kapítalismann og frjálsa markaði. Dr. Butler benti réttilega á að hlut- verk stjórnenda í atvinnulífinu væri að reka fyrirtæki, þeir væru ekki stjórnmálamenn og þyrftu í raun ekki að reka pólitísk erindi. „Þeir eru heldur ekki stjórnmálaheimspekingar en þurfa þess í stað að ráða gott fólk til starfa fyrir hagsmunasamtök atvinnulífsins. Fyrir utan það að gæta hagsmuna atvinnulífsins og fyrirtækja í praktískum atriðum er það jafnframt hlutverk þeirra að huga að hug- myndafræðinni um frjálsa markaði, lægri skatta o.s.frv.,“ bætti Dr. Butler við. *** Allt er þetta satt og rétt. Stjórnendur í atvinnu lífinu hafa í nógu að snúast við rekstur fyrirtækja og takmarkaðan tíma til að sinna stjórnmálum eða hugmyndabaráttu. Þá er hins vegar vert að spyrja, er nóg að hagsmunasamtök atvinnulífsins sinni þessari baráttu? Hér landi starfa sem betur fer öflug samtök sem gæta hagsmuna atvinnulífsins og það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með störfum þeirra síðustu ár. Flestir þeirra aðila, bæði karlar og konur, sem stýra helstu hagsmuna samtökum atvinnulífsins virðast átta sig á mikilvægi þess að glíma ekki bara við praktísk málefni dagsins heldur nýta þau tækifæri sem gefast til að tala fyrir auknu frelsi, lægri sköttum, minni afskiptum hins opinbera o.s.frv. Allt er það mikilvægt. Æsingamenn koma og fara en kapítalisminn og frelsið er vonandi komið til að vera.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.