Þjóðmál - 01.12.2018, Page 8

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 8
6 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 AF VETTVANGI STJÓRNMÁLANNA Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fagnaði eins árs afmæli 30. nóvember 2018. Forystumenn stjórnarflokkanna, Katrín Jakobsdóttir VG, Bjarni Benediktsson Sjálfstæðisflokki og Sigurður Ingi Jóhannsson Framsóknarflokki, minntust dagsins meðal annars með sameigin legri grein i Morgunblaðinu á afmælisdaginn. Þau minna á að stjórnarflokkarnir séu ekki „náttúrulegir bandamenn í stjórnmálum“ og þess vegna þurfi að gæta vel að ólíkum sjónarhornum og samráð sé lykilatriði. Fyrir vikið séu „mál unnin í meiri pólitískri sátt og því vonandi þannig úr garði gerð að þau geti staðist tímans tönn – og sviptingar í pólitík“. Minnt er á að undanfarin 10 ár hafi íslenska þjóðin „búið við samfelldan hagvöxt og batnandi kaupmátt og lífskjör“. Ríkisstjórnin hafi einsett sér „að skila hagsældinni sem hér hefur ríkt til alls samfélagsins og gæta þess að komandi kynslóðir njóti hennar líka“. Það hafi meðal annars verið gert með því auka samfélagsleg framlög og fjárveitingar til innviða um samtals 90 milljarða króna í tvennum fjárlögum. Björn Bjarnason Stjórnarafmæli – veikluð stjórnarandstaða – svissneskt dæmi Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fagnaði eins árs afmæli 30. nóvember 2018.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.