Þjóðmál - 01.12.2018, Side 13

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 13
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 11 Að þetta andrúmsloft skapist á þjóðþinginu er stóralvarlegt. Rannveig Ernudóttir, varaborgarfulltrúi Pírata, sagði sig úr flokknum og vill hverfa úr borgarstjórnarflokki hans. Frá þessu sagði hún á FB föstudaginn 2. nóvember 2018. Þar stóð meðal annars: „Undanfarnar vikur hef ég gefið Pírötum færi á að snúa frá meðvirkni með eineltis- hrottum sem notfæra sér strúktúr flokksins til að níða og hrekja burt fólk sem þau telja „ópírataleg“. En ekkert gerist. Aftur og aftur vinna hin freku og óheiðarlegu með óljósum ásökunum, heift og sjálfhverfum túlkunum á grunngildum Pírata. Eftir sitja þeir sem níðst er á ein og óstudd af þeim sem geta stigið inn. Ég hef virkilega vonað að hægt yrði að leiðrétta það sem hefur verið gert rangt, á hlut margra. En það gerðist ekki. Ég vonaði að Píratar væru hópurinn sem myndi aldrei vera rotinn að innan og myndu svo sannarlega standa upp ef það gerðist. En það gerðist ekki! Fólkið sem hagar sér með þessum hætti felur sig á bak við flatan strúktúr, en þetta er ekki flatur strúktúr, þetta er stjórnleysi og vanhæfni! Ofbeldistæki hinna freku!“ Eftir úrsögn Rannveigar Ernu hvarf Atli Þór Fanndal, pólitískur ráðgjafi Pírata, einnig úr flokknum. Hann tilkynnti þetta á FB 3. nóvemer 2018 og sagði: „Ég varð fyrir hrottaleg einelti sem barn. Það hefur kennt mér að ekkert er til sem heitir hlutleysi gagnvart slíku. Kafkaeskt einelti er hugsanlega það ógeðslegasta sem fyrir finnst. Það er ekkert eins ógeðslegt og að upplifa einelti sem hluta af strúktúr. Kerfi sem virðast svo fullt af dysfúnksjón að það hunsar allt mannlegt og fær fólk til að upplifa sig smátt og valdalaus eru nú oftar en ekki hönnuð af mikilli natni og virka nákvæmlega eins og þeim er ætlað. [...] Ég mun ekki starfa fyrir Pírata, veita neina ráðgjöf, vera í flokknum né kjósa hann eða styðja nema ég sjái áhrifafólk flokksins setja þeim sem standa að aðförinni stólinn fyrir dyrnar. Ítrekuðum ráðleggingum mínum um hvernig takast á við svona hegðun hefur ekki verið fylgt. Ég get ekki tengst hreyfingu sem setur kíkinn fyrir blinda augað gagnvart svona hegðun.“ Pírötum hefur gengið merkilega vel að halda þessum ágreiningi innan dyra hjá sér. Ástæðan er meðal annars sú að þetta er dæmigerður afkimaflokkur. Talsmenn hans láta eins og þeir séu í raun eins og pólitískir hvítvoðungar í samanburði við aðra. Það sé ekki unnt að tala um þá í sömu andrá og aðra vegna þess hve miklu betri, heiðarlegri og heilbrigðari en aðrir þeir séu. Þetta kann að vera ástæðan fyrir því að ekki kemst í hámæli hér að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, formaður þingflokks Pírata, er kosin nefndarformaður á Evrópuráðsþinginu í Strassborg sem fulltrúi þingflokks jafnaðar- manna. Frétt Morgunblaðsins frá 28. september 2018 þar sem fjallað er um starfshætti Pírata á Alþingi.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.