Þjóðmál - 01.12.2018, Side 16

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 16
14 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Menntun Katrín Atladóttir Læs en ekki skrifandi Forritun liggur að baki nær allri tækni nú til dags. Þannig eru smáforrit í símum og forrit í tölvum. Vefsíður, tölvuleikir og jafnvel umferðar ljós eru forrituð. Forritun er sam- skiptamáti okkar við tölvur, sameiginlegt tungumál. Í grunninn snýst forritun um að leysa vandamál. Í dag má segja að börn séu læs þegar kemur að tækni en ekki skrifandi. Flest börn eru einungis neytendur tækni en skapa ekkert sjálf. Þau kunna að nota tölvur til að spila tölvuleiki, horfa á kvikmyndir á Netflix eða til að skoða samfélagsmiðla. Fæst kunna að þróa sínar eigin hugmyndir með tölvunni. Forritun er eina málið sem tölvur skilja og til að geta tjáð sig við tölvurnar þurfa börnin að læra tungumálið þeirra. Tölvur og vélmenni eru stór hluti af daglegu lífi og munu verða enn stærri hluti þegar fram líða stundir. Í raun er tæknin svo sam- tvinnuð lífi okkar í dag að fólk er hætt að átta sig á hvenær það er að notfæra sér tæknina. Því er mikilvægt að börn hafi grundvallar- skilning á því hvernig þessi tæki virka. Flest störf framtíðarinnar munu krefjast tæknilæsi og því mikilvægt að byggja upp færni hjá börnum áður en það verður of seint. Ísland eru tæknisinnuð þjóð og hefur alla burði til að vera leiðandi í fjórðu iðn- byltingunni og þeim áframhaldandi tækni- framförum sem eru í vændum. Forritunarkennsla ætti að vera hluti af námi í grunnskólum. Hún eflir ýmsa mikilvæga þætti hjá börnum sem eru nauðsynlegir í nútíma samfélagi. Við verðum að undirbúa börnin fyrir framtíðina.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.