Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 17

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 17
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 15 Ekki bara fyrir nörda Forritun er ekki einungis fyrir þá sem ætla sér að verða tölvunarfræðingar eða forritarar. Ekki frekar en við ætlumst til að allir verði smiðir þó við kennum smíði í grunnskólum. Hæfni í forritun er til margs nýtileg. Rök- hugsun og færni til að brjóta vandamál í minni leysanlegar einingar er eitthvað sem börn munu búa að um aldur og ævi óháð því hvaða veg þau kjósa að feta. Þess utan eykst þörfin fyrir fólk sem kann að forrita og skilur forritun með hverjum deginum. Þannig er áætlað er að 65% starfa framtíðarinnar séu ekki til í dag og allar líkur eru á að flest þau nýju störf sem skapast verði tæknistörf. Forritun er ekki bara fyrir nörda eða sérfræðinga heldur eitthvað sem tengist nánast öllu í daglegu lífi. Því er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að kynna hana fyrir börnum. Ástæður til að kenna forritun Forritun er læsi 21. aldarinnar. Börnin okkar eiga að kunna að lesa og skrifa. Þá er mikil- vægt að breyta staðalímyndinni um að forritun sé bara fyrir nörda og drengi sem spila tölvuleiki. Forritun er fyrir alla. Það þarf sérstaklega að huga að því að kynna fagið fyrir stúlkum þar sem mikill meirihluti þeirra sem útskrifast úr tölvunarfræði í dag eru drengir. Það sem við viljum í raun kenna er forritunarleg hugsun (e. computational thinking) og kennir okkur að brjóta niður vandamál í minni auðleysanlegri einingar, að þekkja mynstur í vandamálum og að leysa eitt vandamál í einu. Þannig kennum við börnunum okkar að nálgast vandamál með skapandi og lausnamiðuðum hætti. Forritun þjálfar okkur í þessum þankagangi. Kennd er rökhugsun sem nýtist hvar sem er. Um leið er okkur kennt að skilja samfélagið og hlut tækninnar í því. Skapaður er góður grunnur fyrir framtíðina þar sem stór hluti starfa mun sem fyrr segir reiða sig á tækni og tæknilæsi. Forritun getur jafnframt þjálfað börn í þraut- seigju. Þegar leysa þarf mörg lítil vandamál og koma með hverja lausnina á fætur annarri þarf að standast mótlæti þegar lausnin virkar ekki. Það gefur líka margfalt til baka þegar þeim tekst loksins að finna réttu lausnina. Þá er forritun mun meira skapandi en margir gera sér grein fyrir og eykur því færni á því sviði. Það göfgar einstaklinginn mjög að skapa, byggir upp sjálfstraust og veitir áþreifanlegt virði. Auðvelt er nýta forritun í tengslum við aðrar skapandi greinar innan grunnskóla eins og í sjónlistum. Horft til nágrannalanda Forritun er kennd í flestum þeim löndum sem Íslendingar kjósa að bera sig saman við. Árið 2012 var Eistland fyrsta landið í Evrópu til að innleiða forritun í námskrá sína fyrir öll börn frá fyrsta skólastigi. Árið 2014 voru fimmtán þjóðir í Evrópu með forritun í námskrá og þar af níu sem kenna forritun frá fimm ára aldri. Þar má til dæmis nefna Eistland, Frakkland, Spán, England, Finnland og Pólland. Lönd sem hafa innleitt forritun á eldri skólastigum eru til dæmis Danmörk, Austurríki og Búlgaría. Svíþjóð bætti forritun á námskrána sína frá hausti 2018 og Norðmenn eru með það á stefnuskrá hjá sér. Sum lönd kenna forritun sem sér námsgrein en önnur, líkt og Finnar, kenna forritun frá sex ára aldri þvert á aðrar greinar. Danir kenna forritun tengda raungreinum, aðallega stærðfræði. Af þessu getum við lært. Það er til margra landa að líta þegar kemur að innleiðingu hér. Áætlað er að 65% starfa framtíðarinnar séu ekki til í dag og allar líkur eru á að flest þau nýju störf sem skapast verði tæknistörf
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.