Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 18

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 18
16 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Staðan hérlendis Forritun var fyrst nefnd í aðalnámskrá grunn- skóla árið 1996. Í nýjustu útgáfunni, frá 2013, er vægi forritunar í raun minnkað og sett meiri áhersla á þekkingarleit á netinu og notkun forrita. Árið 2015 var lögð fram tillaga um að koma forritun í aðalnámskrá en þau svör fengust að svo væri nú þegar. Sú er ekki raunin, eina sem aðalnámskrá grunnskóla hefur að segja um forritun er að við lok 10. bekkjar geti nemandi nýtt hugbúnað við forritun og miðlun þekkingar á fjölbreyttan og skapandi hátt. Það er því skólanna að túlka hversu mikla forritun skal kenna. Það veltur á áhuga og getu kennara hversu mikið forritun er tvinnuð inn í námsefnið. Þá er það hlutverk stjórnmálamanna að búa svo um hnútana að allir kennarar geti sótt sér menntun og þau tæki og tól sem þarf til að koma forritun í kennslu. Árið 2016 var farið af stað með verkefni sem fólst í því að gefa öllum börnum í 6. og 7. bekkjum grunnskóla forritanlegar smátölvur sem kallast micro:bit. Þetta var stærsta verkefni sem hefur verið ráðist í til að efla forritunarkennslu á Íslandi. Þetta var samstarfsverkefni mennta- og menninga r- málaráðuneytisins, Menntamálastofnunar, RÚV og Samtaka iðnaðarins. Það gekk vel meðan á því stóð og voru tölvurnar afhentar um 9.000 nemendum. Verkefnið hefur því miður verið lagt af. Þá var einstaklega sorglegt að sjá að í glænýrri menntastefnu Reykjavíkurborgar til 2030 er ekki minnst einu orði á forritun - en lítillega rætt um eitthvað sem kallað er heild- stæð nýting stafrænnar tækni. Það er til ekki marks um mikla framsýni eða tilfinningu fyrir því hvernig samfélagið er að þróast. Það er ábyrgðarhluti þeirra sem hafa með mótun menntakerfisins að gera að búa þannig um að börnin okkar séu vel í stakk búin til þess að takast á við lífið þegar skólagöngu þeirra lýkur. Margir skólar hafa tekið sig til og bætt forritun í sitt námsefni. Árskóli á Sauðárkróki er þar einna öflugastur. Þar er forritun kennd sem skyldufag á miðstigi og sem valfag á unglinga stigi. Þar fá krakkarnir að forrita og leika sér með vélmennið Sphero. Sphero er búinn til sem kennslutól til að kenna börnum forritun og til að örva skapandi hugsun. Sphero er lítil kúla sem er hægt að forrita til að færa á milli staði og í Árskóla hefur hann til dæmis verið notaður til að endurgera senur úr bíómyndum og fleira skemmtilegt. Í Reykjavík hefur Hólabrekkuskóli gert tilraunir með forritunarkennslu frá 1. bekk og tvinnar forritun og aðra tækni nú við fleiri námsgreinar á miðstigi. Þar er tölvuleikurinn Minecraft til dæmis notaður til að kenna börnum forritun, stærðfræði, ensku og sam- félagsfræðigreinar. Forritun er ekki einungis fyrir þá sem ætla sér að verða tölvunarfræðingar eða forritarar. Ekki frekar en við ætlumst til að allir verði smiðir þó við kennum smíði í grunnskólum.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.