Þjóðmál - 01.12.2018, Page 20

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 20
18 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Greinaflokkur: Kjarasamningar og kjaramál Halldór Benjamín Þorbergsson Hvernig kaupin gerast (enn) á eyrinni Um þessar mundir eru 40 ár frá útgáfu bókar- innar Hvernig kaupin gerast á eyrinni eftir Baldur Guðlaugsson. Í bókinni fjallar hann um aðferðir sem viðhafðar eru hér á landi við kaupdeilur og kjarasamninga sem hann lýsir svo: „Skipulag kjaraviðræðna á Íslandi hefur verið lýst með þeim hætti að þar fáist of margir sjálfstæðir aðilar við að gefa út ávísanir á sömu verðmætin. Engin tilraun er gerð til þess að ná almennu samkomu- lagi um það hvað til skiptanna sé, að ekki sé minnst á í hvaða hlutföllum skipt skuli. Fjöldi samningsaðila og kjarasamninga er alltof mikill.“ Þetta eru, því miður, orð að sönnu fjórum áratugum eftir útgáfu bókarinnar. Á Íslandi eru 85,5% launamanna í stéttar- félögum sem er langhæsta hlutfall í heiminum. Þátttakan er fimm sinnum meiri en að meðaltali í OECD ríkjunum og fjórum sinnum meiri en í ESB. Í flestum ríkjum nema Íslandi fer þátttaka launamanna í stéttarfélögum stöðugt minnkandi. Alþingi hefur tryggt verkalýðsfélögunum þessa sterku stöðu með margvíslegri löggjöf og ber þar hæst svo- kölluð starfskjaralög nr. 55/1980. Íslendingar slá einnig heimsmet þegar kemur að fjölda launamanna á bak við hvern kjarasamning. Þannig eru að meðaltali um 200 launamenn að baki hvers kjarasamnings á Íslandi og dæmi er um kjarasamning sem gildir fyrir aðeins einn starfsmann. Til samanburðar eru 9.000 launamenn á bakvið hvern kjara samning í Finnlandi og 5.000 í Noregi. Á næstu mánuðum stendur fyrir dyrum endurnýjun 700 kjarasamninga hjá 150 stéttarfélögum. Niðurstaða hennar mun skipta sköpum um efnahagsþróun næstu ára.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.