Þjóðmál - 01.12.2018, Side 21

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 21
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 19 Leiftursókn gegn batnandi lífskjörum gagnast engum Kröfugerðir stærstu stéttarfélaga landsins eru komnar fram. Samtal á milli SA og launþegahreyfinga er hafið og þar eru mörg flókin úrlausnarefni undir. Niðurstaða viðræðnanna mun ráða miklu um þróun efnahagsmála á komandi árum. Um þetta umhverfi er fjallað í bókinni: „Verkalýðshreyfingin hefur mikil áhrif hér á landi. Stefna hennar í kjaramálum skiptir sköpum að því er varðar stjórn efnahags- mála, og gömul og ný dæmi sýna að hreyfingin getur haft örlög ríkisstjórna í höndum sér. En verkalýðshreyfingin er ekki alfarið sterk, hún er hvort tveggja í senn sterk og veik, eins og Jón Sigurðsson, fv. forstöðumaður Þjóðhagsstofnunar, komst að orði. Sterk í þeim skilningi, að hún getur komið fram vilja sínum í kaupgjaldsmálum í heild. En veik í þeim skilningi, að hún hefur ekki megnað að móta skynsamlega, árangursríka og innbyrðis samræmda stefnu í launa- og efnahagsmálum.“ Miklar breytingar hafa orðið á samfélaginu frá ritun bókarinnar sem vísað er til í inngangi. Samfélagsmiðlar, breytt neyslumynstur og valröðun launamanna auk minni fylgispektar við stjórnmálaflokka hefur komið róti á margt sem áður var tregbreytanlegt. Tilfinning manna og hópa hefur jafnvel meira vægi en staðreyndir og það er enn meira áhyggjuefni að fleiri og fleiri skeyta í engu um staðreyndir og telja að mælanlegir þættir skipti yfir höfuð takmörkuðu máli. Það þarf útsjónarsemi og kraft til að andæfa þeirri sýn á þjóðfélagið. Efnahagslegt samhengi kjarasamninga Undanfarinn áratug hefur þjóðin lagt hart að sér við að endurheimta sterka stöðu heimila, fyrirtækja og þjóðarbúsins. Allir hafa lagst á árarnar og árangurinn er eftirtektarverður. Það er mikið í húfi á næstu misserum að glutra ekki niður þeim mikla árangri. Síðustu tvö ár hafa Samtök atvinnulífsins farið í hring- ferð um landið og efnt til samtals á opnum fundum við atvinnurekendur og launþega um stöðu efnahagslífsins og kjaraviðræður. Í þessari grein er leitast við að draga upp þá stóru mynd sem SA hafa gert að umtalsefni á fundum víða um land undanfarin tvö ár. Dæmalaus árangur hefur náðst síðustu ár. Mikill hagvöxtur um langt skeið hefur skapað grundvöll fyrir launahækkunum sem hafa skilað kjarabótum til heimila. Atvinnuleysi er lítið, opinberar og almennar skuldir hafa verið greiddar niður og ríkisfjármálin hafa náð jafnvægi á ný. Ísland er skuldlaust og á nettó eignir í útlöndum. Prófsteinninn framundan er að viðhalda þeim árangri sem áunnist undanfarin ár. Það er engin skyndi- lausn í boði að þessu sinni. Í því samhengi er mikilvægt að horfa til íslenskra hagtalna í sögulegum og alþjóð- legum samanburði. Hér að neðan eru fjögur atriði sem mikilvægt er að draga fram og einkenna íslenskan vinnumarkað um þessar mundir. 1. Frá þjóðarsátt hafa laun í krónum ríflega fimmfaldast en verðlag þrefaldast Þótt laun geti ávallt hækkað í krónum talið þá stjórnast kaupmáttur af framleiðnivexti í þjóðarbúinu. Á endanum leiðréttast launa hækkanir umfram framleiðnivöxt með verðbólgu. Þetta sést skýrt þegar litið er nokkra áratugi til baka. Frá árinu 1990 hafa laun á Íslandi hækkað um 430% en verðlag um 204%. Það þýðir að raunverulegt verðmæti launa, kaupmáttur launa, jókst um 75%. Þetta tímabil einkenndist af mun meiri stöðugleika en áratugirnir á undan þegar hlutfallshækkanir launa og verðlags voru margfalt meiri.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.