Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 26
24 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018
4. Hvergi rennur meiri virðisauki
en til launaþega á Íslandi
Launahlutfall er mælikvarði á skiptingu
verðmæta milli launafólks og fjármagns.
Þegar laun hækka umfram verðmætasköpun
hækkar launahlutfallið. Launahlutfallið hefur
farið hækkandi undanfarin ár og var 63%
árið 2017 samanborið við 56,6% árið 2011.
Launahlutfallið á Íslandi er það hæsta meðal
OECD ríkjanna.
Velferðin byggist á öflugum
útflutningsgreinum
Lífskjör á Íslandi eru á meðal þeirra bestu í
OECD. Ísland er hálaunaríki og hlutur launa-
fólks í verðmætasköpuninni er hvergi hærri
og tekjujöfnuður mestur. Verkalýðsfélög geta
knúið fram krónutöluhækkanir launa með
þvingunaraðgerðum en ef þær eru umfram
verðmætasköpun í þjóðarbúinu leiðir það
innan skamms til aukinnar verð bólgu. Til
langs tíma skiptir hagvöxtur mestu máli
um lífskjör almennings og hagfellt rekstrar-
umhverfi er forsenda bættra lífskjara.
Mikilvægt er að hafa hugfast að núverandi
hagvaxtarskeið er einstakt. Átta ára samfellt
hagvaxtarskeið er óvenju langt. Hagvöxtur inn
var byggði á útflutnings greinum og óvenju
mikil gengisstyrking krónunnar jók kaupmátt
landsmanna veru lega. Gjaldeyris tekjur hafa
staðið undir innlendir neyslu og engin þörf á
erlendri skuldsetningu. Sam felldur viðskipta-
afgangur síðustu ár og greiðsla erlendra
skulda endurspegla sterka stöðu þjóðarbúsins.
Nýjar tölur sýna að þjóðarbúið á 369 milljarða
króna í hreinum erlendu eignum að frátöldum
skuldum sem svarar til 13% af vergri lands-
framleiðslu.
Það eru blikur á lofti og hagvöxtur fer
minnkandi. Aðlögunin er hröð og spár
greiningaraðila um hagvöxt fara lækkandi.
Launahlutfall OECD ríkja árið 2017
% af vergum þáttatekjum
63,0
60,9
60,4
60,3
59,3
56,6
43,3
39,5
36,3
31,4
28,7
Svíþjóð
Danmörk
...
Ísland 2017
Síle
Frakkland
Sviss
Ísland 2011
Grikkland
Tyrkland
Írland
Mexíkó
Heimildir: OECD, Seðlabanki Íslands