Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 28

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 28
26 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Upp úr miðjum áttunda áratugnum stefndi efnahagslífið í sæmilegt jafnvægi og hag- vöxtur glæddist eftir útfærslu landhelginnar. Sumarið 1977 voru gerðir svokallaðir „Sólstöðu samningar“ sem gerðu út um vonir manna um stöðugt verðlag og gengi krónunnar. Þessir kjarasamningar fólu í sér 25% launahækkanir og var gengið fellt ári síðar um 25%. Áratugurinn sem á eftir fylgdi einkenndist af miklum launahækkunum, m.a. vegna verðtryggingar launa, mikilli verðbólgu og gengisfellingarnar fylgdu þeim eins og skugginn. Sem fyrr var hagvöxtur sveiflu- kenndur, í takt við viðskiptakjör, en á árunum 1984-1987 var mikill uppgangur vegna aflaaukningar í sjávarútvegi. Gengi krónunnar var haldið föstu, þrátt fyrir miklu meiri kostnaðarhækkanir en erlendis, og versnaði samkeppnisstaða atvinnulífsins verulega. Óhófleg bjartsýni ríkt á þessum árum og var ráðist í miklar fjárfestingar en eins og Sigurður Snævarr segir í bók sinni Hagsögu Íslands: „Þetta tímabil er eitt besta dæmið um hversu sterk bein þarf til að þola velgengni.“ Bókin var gefin út árið 1993 og hafa bæst a.m.k. tvö dæmi um þensluskeið sem staðfesta ályktun Sigurðar. Árið 1986 gerðu aðilar almenna vinnu- markaðarins tilraun til þjóðarsáttar um stöðug leika í efnahagsmálum, en sú tilraun rann út í sandinn vegna kjarasamninga opinberra starfsmanna á vormánuðum 1987. Það ár var líka hið fræga skattlausa ár, sem olli ofþenslu og miklu launaskriði á vinnu- markaði, en á sama tíma versnaði afkoma sjávarútvegs verulega og gengisfelling varð ekki umflúin. Fátt jákvætt má segja um þetta tveggja áratuga linnulausa efnahagslega öldurót annað en að það skapaði grundvöll fyrir þjóðarsáttarsamningunum 1990. Slíkir samningar höfðu verið reyndir í tvígang á skömmum tíma en árið 1990 náðist sögu- legur árangur með þríhliða samstarfi ASÍ og BSRB, samtaka atvinnurekenda og ríkisins. Samstilling efnahagsstjórnar stjórnvalda og kjarastefnu á vinnumarkaði, á borð við þá sem gerðist í þjóðarsáttinni 1990, er þó fremur undantekning en regla hér á landi. Á síðari hluta tíunda áratugarins hófst mikil efnahagsuppsveifla, samhliða aukningu ríkis útgjalda og lækkun tekjuskatta einstak- linga. Upp úr aldamótunum var komið að nýju efnahagsáfalli þegar netbólan sprakk og gengi krónunnar féll um 20%. Í kjölfarið sigldu þensluárin 2004-2007, og afleiðingar þeirra, sem eru flestum í fersku minni. Lærdómur Sigurðar Snævarr af hagsögu Íslands er enn í fullu gildi: „Enn eitt einkenni efnahagsstjórnar á Íslandi er að allar ríkisstjórnir hafa haft slök „tök“ þegar vel hefur árað.“ 1960: Vísitölubinding afnumin Hagvöxtur Raunbreyting milli ára Heimildir: Macrobond, Seðlabanki Íslands, útreikningar efnahagssvið SA 20 -10 0 10 1960 1965 1970 1975 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2015 1964: „Júnísamkomulagið“ Vísitölubinding tekin upp að nýju 1971: 40 stunda vinnuvika 12% vísitölubundin launahækkun 1974: 20% almenn launahækkun 1977: „Sólstöðusamningar“ 25% launahækkun 1983: Vísitölubinding afnumin 1987: Skattlausa árið, samningar hins opinbera sprengja tilraun til þjóðarsáttar. 1990: Þjóðarsátt 1995-1999: Ríkisfjármálin kynda undir þenslu – tekjuskattur einstaklinga lækkaður um 4% 1967-1968 Gengið fellt um 51,1% 1972-1975 Gengið fellt um 49,8% 1978 Gengið fellt um 26,1% 1982-1984 Gengið fellt um 34,6% 1988 Gengið fellt um 17,9% 1992-1993 Gengið fellt um 13,1% 2000-2001 Krónan veikist um 22,7% 2008-2009 Krónan veikist um 47,2% 2004-2007 Ríkisfjármálin kynda undir þenslu 2011-2016 Kjarasamningar hækka laun um 7,5% að meðaltali á ári Slök hagstjórn hefur undantekningarlítið leitt til efnahagsáfalla í kjölfar góðæra á Íslandi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.