Þjóðmál - 01.12.2018, Side 29

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 29
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 27 Framtíðin er í okkar höndum Lífskjör Íslendinga byggja á viðskiptum við útlönd og efnahagsleg velferð þjóðarinnar byggir á útflutningsgreinum. Ferðaþjónustan hefur á undanförnum árum skilað miklum verðmætum til þjóðarbúsins, ekki aðeins í formi gjaldeyristekna heldur einnig í fjölgun starfa og auknum skatt tekjum hins opinbera. Þá hefur sjávar útvegurinn eflst svo um munar og er í fremstu röð í heiminum í veiðum og vinnslu. Mikilvægt er að varðveita samkeppnishæfni þjóðarbúsins á komandi árum. Launa- breytingar komandi kjarasamninga verða að endurspegla undirliggjandi verðmæta- sköpun atvinnu lífsins. Ábyrgð aðila vinnu- markaðar er mikil. Heilbrigð sýn á kjarasamningsviðræður milli Samtaka atvinnulífsins og launþegasamtaka ætti að byggjast á samstarfi sem tekur engan enda; leik í skilningi leikjafræði með óendanlega mörgum umferðum og minni leikmanna um alla leiki sem leiknir hafa verið í fortíð. Eins konar hjónaband aðila sem skal endast til eilífðar. Það er á þessum grunni sem norræn verkalýðshreyfing og atvinnu- rekendur hafa byggt upp farsælt samstarf. Kjarasamningar fjalla um lífskjör fólks og um jákvæða þróun samfélagsins. Árangursríkar kjaraviðræður geta aldrei verið byggðar á upphrópunum annars viðsemjandans. Þær eru flókið úrlausnarefni sem hægt er að leysa með samstarfi sem byggist á heilindum og er grundvallað á réttu mati á stöðu hverju sinni, ásamt heilbrigðum metnaði til að ganga eins langt og hagkerfið leyfir hverju sinni. Eins og Sigurður Líndal, prófessor, skrifaði eitt sinn: „Þegar meira er tekið en aflað er berast bakreikningarnir áður en varir. Og þá sé skemmtanin úti, því reynslan hafi marg- sinnis sýnt, að þeir sem hæst láti kunni engin ráð til lausnar þeim vanda.“ Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.