Þjóðmál - 01.12.2018, Side 31

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 31
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 29 Það vilja allir há lægstu laun Þessi árangur hefur náðst í hægum skrefum, því þó að lífskjörin hafi á mælikvarða vergrar landsframleiðslu átjánfaldast á 100 árum þýðir það einungis innan við 3% vöxt á ári. Góðir hlutir gerast hægt. Kröfugerðir verkalýðshreyfingarinnar gera á hinn bóginn ráð fyrir því að góðir hlutir gerist strax. Því skal haldið til haga að það er skiljan- leg krafa að laun og tekjur séu mannsæmandi og dugi til framfærslu. Aðstæður fólks eru misjafnar og því miður fara sumir halloka í samfélaginu og flest erum við sammála um að styðja við þá sem minnst mega sína. Enda snýst gagnrýni á kröfugerðir verkalýðs- hreyfingarinnar að litlu leyti um markmiðið. Gagn rýnin snýst um leiðina að markmiðinu, leið sem er ekki bara ólíkleg til þess að skila þeim árangri sem stefnt er að heldur líklegri til að beinlínis skerða lífskjör flestra Íslendinga. Hvers vegna má ekki bara tvöfalda lægstu laun? Því hefur verið töluvert haldið á lofti síðustu vikur að kröfugerðirnar snúist fyrst og fremst um að hækka lægstu launin nógu mikið en þó þannig að heildarlaun hækki ekki svo mikið að til verðbólguskots komi. Í sjálfu sér er sannleikskorn í því, þar sem kröfugerð VR virðist t.d. gera ráð fyrir því að regluleg laun hækki um ca. 7% á ári, sem virðist óraunhæft en er þó ekki alfarið fjarstæðukennt. Það hangir þó á tveimur geigvænlega stórum forsendum, sem brotna við minnsta þunga. Í fyrsta lagi er einnig gert ráð fyrir styttingu vinnuvikunnar úr 40 í 35 vinnustundir og við það eitt er hækkun reglulegra meðallauna á vinnustund orðin nær 12% og hækkun þeirra sem lægstu launin hafa komin nær 17%. Starfsgreinasambandið gengur skrefi lengra og stefnir á 32 stunda vinnuviku sem þýðir 21% árlega launahækkun á vinnustund. Í öðru lagi hefur reynsla síðustu ára og ára tuga kennt okkur að það sama gildir um kýrnar í fjósinu og launahækkanir á vinnumarkaði. Þegar einn hækkar, þá hækka allir. Þetta ber launaþróun síðustu ára með sér þar sem áhersla hefur verið á krónutöluhækkanir og hlutfallslega meiri hækkun lægstu taxta sem ekki hefur skilað sér þegar á hólminn er komið þar sem launadreifing ASÍ (miðgildi í hlutfalli við lægstu laun) hefur lítið breyst frá 2013. Ósamrýmanlegar kröfur á vinnumarkaði Til að skilja hvers vegna hækkun ákveðinna hópa umfram aðra smitist upp eða niður launa stigann þarf að hafa ýmislegt í huga. Eitt það veigamesta er gríðarlega fjöl breyttar og að mörgu leyti skiljanlegar kröfur hinna ýmsu aðila á vinnumarkaði. Kennarar glíma við atgervisflótta og vilja fá hærri laun – skiljanlega. Aðrir háskólamenntaðir, t.d. félagsmenn í BHM, vilja að menntun sé metin til launa þar sem fjárhagslegur ávinningur hefur minnkað um helming á einum áratug – skiljanlega. Fólk í vaktavinnu vill hærri laun því vaktavinna veldur miklu álagi – skiljanlega. Og svona mætti lengi telja. Erfitt er því að uppfylla kröfur og óskir allra, eins réttmætar og þær kunna að vera, þannig að sátt sé um að ákveðnir tekjuhópar eða stéttir hækki meira en aðrir. Reynslan af síðustu kjarasamningalotu bendir til þess að það sé hægara sagt en gert.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.