Þjóðmál - 01.12.2018, Page 32

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 32
30 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Enn meiri þjöppun á jafnri launadreifingu … Annað sem varpar ljósi á ómöguleikann sem fellst í því að ákveðnir hópar hækki meira en aðrir, án nægilegrar sáttar, er hvernig launadreifingin er í raun. Miðað við fulla vinnu voru regluleg laun 80% landsmanna árið 2017 á fremur þröngu bili eða 339-895 þúsund krónur. Störf eru misjöfn og krefjast misjafnar færni rétt eins og afköst starfsfólks eru misjöfn. Því er eðlilegt að laun séu breyti- leg, þó að sjálfsögðu megi deila um hversu mikill sá breytileiki sé og ætti að vera. Í því samhengi má benda á að tekjujöfnuður á Íslandi er sá mesti hér á landi í Evrópu skv. Gini stuðlinum auk þess sem þeir tekjulægstu bera meira úr býtum hér á landi heldur en á hinum Norðurlöndunum (sjá mynd 2). … og ennþá meiri þjöppun með skatta breytingum Enn eitt atriði sem bendir til þess að kröfugerð verkalýðsfélaganna sem hafa komið fram séu óraunhæfar og ekki í takt við efnahagslegan raunveruleika, eru þær skattkerfisbreytingar sem lagðar eru til. Þær gera ráð fyrir skattfrelsi lægstu launa sem í dag gæti útfærst sem skattleysismörk við 300.000 krónur á mánuði með hækkun persónuafsláttar. Að óbreyttu þýðir það um 149 ma. kr. tekjutap ríkis og sveitarfélaga skv. svari fjármálaráðherra við fyrirspurn á Alþingi (543. mál á 149. löggjafarþingi). Slík upphæð samsvarar rekstri Landspítalans í á þriðja ár svo hækka þyrfti skattprósentur verulega á móti. Viðskiptaráð Íslands | 2

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.