Þjóðmál - 01.12.2018, Side 35

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 35
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 33 verðmætasköpun og þannig meiri lands- framleiðslu (sjá mynd 5). Þegar aftur á móti er útlit fyrir hægari gang í efnahagslífinu á næstu misserum segir það sig sjálft að svigrúmið er lítið. Þrjár leiðir á krossgötum ósjálfbærra launahækkana Í fyrrnefndum pakka Viðskiptaráðs er dæmi- saga tekin af „litla fyrirtækinu hennar Önnu“ sem stendur frammi fyrir miklum launa- hækkunum. Í dæminu mun þetta litla fyrir tæki lenda í taprekstri ef ekki er gripið til aðgerða. Þar stendur Anna frammi fyrir þremur val kostum til að bregðast við. Hún getur hækkað verð, sagt upp starfsfólki eða tekið lán með von um að framundan sé betri tíð. Þetta litla dæmi má segja að gildi fyrir efna- hags lífið í heild. Ekkert verður til úr engu svo ef launahækkanir fara algjörlega úr böndun um eru þrjár leiðir sem hagkerfið getur farið. Í fyrsta lagi er það í gegnum hærra verð á vöru og þjónustu, eða verðbólgu sem við höfum reynt svo oft og þekkjum óþægilega vel af fyrri reynslu, sérstaklega á 8. og 9. ára- tugnum þegar verðbólga og laun hækkuðu á víxl. Í öðru lagi geta launahækkanir brotist fram í atvinnuleysi þar sem fyrirtæki hagræða og segja upp fólki. Loks er tæknilega séð hægt að komast framhjá því að hér verði atvinnuleysi og/eða verðbólga. Hljómar það of gott til að vera satt? Það er vegna þess að það er of gott til að vera satt. Staðreyndin er sú að það geti orðið kallar á mikinn viðskiptahalla og þar með erlenda skuldsetningu. Sá ávinningur væri þá tekinn að láni erlendis frá og við vitum að alltaf kemur að skuldadögum. Stundum er því þó ranglega haldið fram að launahækkanir sem eru úr samræmi við efnahagslegan veruleika geti skilað raunverulegum ávinningi. Viðskiptaráð Íslands | 5

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.