Þjóðmál - 01.12.2018, Side 36

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 36
34 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Í pakkanum „Hvað er til skiptanna?“ er því lýst ítarlega hvers vegna svo er. Í stuttu máli munu launahækkanir, án mikils atvinnuleysis og verðbólgu, auka kaupmátt landsmanna gríðarlega mikið. Framleiðslan í hagkerfinu á vöru og þjónustu vex þó miklu hægar þar sem framleiðni vex hægar svo í staðinn þarf að auka innflutning gríðarlega mikið. Á mynd 6 sem má sjá sviðsmynd með 15% almennum launahækkunum á ári í þrjú ár og að öðru leyti hagfelldri efnahagsþróun eins og tæplega 5% árlegum framleiðnivexti, sem er nær fordæmalaust yfir svo löng tímabil. Þar sem einkaneysla, samneysla og fjárfesting (sem saman kallast þjóðarútgjöld) aukast gríðarlega í takt við aukinn kaupmátt gefur viðskiptajöfnuður verulega eftir vegna innflutnings og snýst í viðskiptahalla og endar á svipuðum slóðum og á árunum fyrir fjármálkreppu, eða í -20% af landsframleiðslu. Slíkt kallar á gríðarmikla erlenda skuldsetningu þjóðarbúsins sem vandséð er að staðið verði undir til lengri tíma og skapar mikla áhættu fyrir fyrirtæki, ríki og almenning. Efast má stórlega um að verkalýðshreyfingin vilji ráðast í slíkar æfingar. Viðskiptaráð Íslands | 6 Það er ósk allra að kaupmáttur landsmanna sé sem mestur og að hér séu greidd há laun. Ekkert verður þó til úr engu og launin þurfa að endurspegla íslenskan veruleika.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.