Þjóðmál - 01.12.2018, Side 38

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 38
36 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Gunnar Páll Pálsson Hver verður uppskera verkalýðshreyfingarinnar? Greinaflokkur: Kjarasamningar og kjaramál Allir sem hafa sótt fundi stéttarfélaga í aðdraganda kjarasamninga vita að þar er sjaldan skortur á röddum sem vilja sækja miklar kjarabætur. Starfsgreinasambandið og verslunarmenn hafa nú farið fram á hækkun lágmarkslauna upp í 425 þúsund krónur, að skattleysismörk verði tvöfölduð, vinnutími styttur og að gert verði stór átak í að auka framboð á hagstæðu húsnæði svo eitthvað sé nefnt. Ef kröfurnar ná fram að ganga svarar það til um 50% hækkun lágmarkslauna. Nú þegar ný forysta verkalýðshreyfingarinnar boðar rótæka stéttabaráttu er líklegt að reynt verði til þrautar að ná fram þessum kröfum. Það stefnir því í átök á vinnumarkaði í byrjun árs 2019. Skipta má sögu kjarasamninga síðustu 50 ára í grófum dráttum í tvennt. Fram undir 1990 má með vissri einföldun segja að það hafi verið sátt meðal stjórnmálamanna um að koma í veg fyrir atvinnuleysi þegar þrengdi að afkomu fyrirtækja og því var gengið reglulega fellt til að lækka raunlaun á Íslandi ef verð á fiskmörkuðum stóð ekki undir Það má segja að kjarasamningar hafi verið sniðnir utan um þarfir kjarnafjölskyldunnar um að vinnu skuli lokið fyrir kvöld­ mat, en þjónustusamfélagið sem við búum í kallar stöðugt á fleiri störf utan hefðbundins dagvinnutíma. Í dag eru einungis 17% heimila á Íslandi með svokallaða kjarnafjölskyldu þar sem eru tveir fullorðnir einstaklingar í sambúð með börn.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.