Þjóðmál - 01.12.2018, Side 44

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 44
42 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Greinaflokkur: Kjarasamningar og kjaramál Ásgeir Jónsson Um þjóðaríþrótt Íslendinga - höfrungahlaupið Þann 2. janúar árið 1941 boðuðu átta verka- lýðsfélög verkfall. Þau voru Dagsbrún, Hið íslenzka Prentarafélag, Bókbindarafélagið, Iðja, Félag verksmiðjufólks, Félag járniðnaðar- manna, Bakarasveinafélagið, Sveinafélag húsgagnasmiða og síðustu Félag ísIenzkra hljóðfæraleikara. Á forsíðu Þjóðviljans á gamlársdag árið 1940 var verkfallið útskýrt með eftirfarandi hætti: „Atvinnurekendur hafa enn ekki gengið að kröfum Dagsbrúnar og annarra verkalýðs- félaga, veldur því illvilji stór atvinnu- rekendanna, sem vilja beygja verkamenn undir ofríki sitt og arðrán“.1 Af efnahagsumræðum á þessum tíma má ráða að rót verkfallanna hafi annars vegar verið mikil verðbólga eða dýrtíð, eins það var þá kallað, vegna vöruskorts er fylgdi heimsstyrjöldinni. Verkalýðsfélögin vildu þess vegna fá „dýrtíðaruppbót“. Hins vegar virðist sem „Bretavinnan“ hafði komið íslenskum vinnumarkaði í uppnám. Ísland hafði þá vorið áður verið hernumið af Bretum og þeim lá á að koma upp varnarvirkjum. Til þess þurftu þeir íslenskt vinnuafl og voru tilbúnir að borga vel. Það hafði síðan smitast út og orðið ný viðmiðun fyrir launakröfur annarra íslenska launþega. Notkun á hugtakinu um höfrungahlaup fjallar um það hvernig mismunandi stéttir eða starfsgreinar berja fram „launaleiðréttingar“ til skiptis án tillits til efnahagslegra aðstæðna.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.