Þjóðmál - 01.12.2018, Page 53

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 53
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 51 „Það eina sem ég gerði eftir mína ítarlegu skoðun á málinu var að fjölga í hópi jafn- hæfra með því að líta til dómarareynslu og skipti svo út fjórum einstaklingum eins og menn þekkja, að loknu heildarmati. Þeir fjórir sem ég gerði tillögu um höfðu allir meiri dómarareynslu en þeir sem fóru út. Ég lagði þær tillögur mínar fyrir þingið og það ríkti mikil ánægja með þær í næstum sólarhring enda stefndi í að í fyrsta sinn væri jafn mikil- væg stofnun og dómstóll sett á laggirnar hér á landi með jöfnu hlutfalli kynja í viðeigandi embættum. En svo fóru þingmenn að fá símtölin þar sem í þá var togað og málið fór í hefðbundnar skotgrafir stjórnmálanna. Það var þó ekki þannig, eins og kom líka fram í þingsal við meðferð málsins, að þingmenn væru tilbúnir til að snúa aftur til upprunalegs lista dómnefndarinnar og samþykkja hann. Bara alls ekki.“ Sigríður segir að einnig hafi komið fram sjónarmið, á meðan á þessu stóð í þinginu, að hún ætti að fara fram á lagabreytingu til að fá meiri tíma til þess að vinna málið. „Það kom aldrei til greina af minni hálfu því ráðherra á að starfa eftir þeim lögum sem gilda þegar ákvörðun er tekin. Það hefði enda aldrei orðið friður um það á endanum að breyta reglunum í miðjum klíðum. Þetta var verkefni sem þurfti einfaldlega að klára,“ segir Sigríður. „Ég hefði auðvitað getað lagt upphaflega lista dómnefndarinnar fyrir þingið og látið fella hann. Hvað hefði umsækjendum þótt um að vera felldir í atkvæðagreiðslu í þinginu? Þá hefði ég líka átt hættu á því að fá á mig skaðabótakröfur frá þeim umsækjendum sem höfðu skilað inn andmælum, mörgum hverjum vel rökstuddum og málefnalegum, við niðurstöðu dómnefndarinnar. Þannig að það er alveg sama hvað ég hefði gert, þetta hefði alltaf orðið mikið og umdeilt mál.“ „Ég tel að ríkið eigi að draga sig út úr verkefnum og þjónustu sem aðrir geta sinnt. Síðan er líka ákveðin þjónusta sem ríkið þarf að veita og þar eigum við að reyna að bæta þjónustuna eins og hægt er,“ segir Sigríður.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.