Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 54

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 54
52 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Viljum ekki embættismannaræði Þrátt fyrir það sem á undan er gengið, þá hefur grundvallarspurningunni ekki verið svarað. Hún er í raun, hver á að velja og skipa dómara við dómstóla landsins. Er það ekki enn óskýrt? „Það er alveg ljóst að í þeim dómum sem hafa fallið og tengjast þessum málum, að dómstólarnir ætla sér ekkert að gera með skýrt lagaákvæði sem segir að Alþingi eigi að hafa aðkomu að málinu. Það er þó alveg skýrt að Alþingi átti lokaorðið í þessu,“ segir Sigríður. „Lögin eru skýr um þetta. Ráðherra hefur skipunavaldið og Alþingi hefur aðkomu að skipuninni ef ráðherrann bregður út frá tillögum dómnefndar um hæfi umsækjenda um embætti dómara. Í tilfelli skipunar í Landsrétt var löggjafinn skýr með það að Alþingi ætti alltaf að koma að skipuninni með þeim hætti að samþykkja eða hafna tillögum ráðherrans, óháð því hvort þær væru þær sömu og hjá dómnefndinni eða ekki. Það er hins vegar alveg ljóst að í þeim dómum sem hafa fallið og tengjast skipun dómara að dómstólarnir meta léttvægt skýrt lagaákvæði sem kveður á um þessa aðkomu Alþingis að skipuninni. Við skipun í Landsrétt var alveg skýrt í lögum að Alþingi hefði lokaorðið.“ Sigríður segir að Alþingi ætti að láta sig varða þessa dóma því það sé alvarlegt löggjafinn geti ekki treyst því að lög sem sett eru til þess að tempra vald hinna tveggja greina ríkis- valdsins, eins og þessu tilviki, standist fyrir dómstólum. „Það að dómstólar geti vikið einni greininni til hliðar líkt og gert hefur verið í dómum hvað þetta varðar undanfarið, gengur ekki upp. Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að það sé óhugsandi niðurstaða að andlitslausar og ábyrgðalausar stjórnsýslunefndir hafi skipunarvaldið í eina grein ríkisvaldsins. Við viljum búa við lýðræði en ekki embættis- mannaræði hér á landi,“ segir Sigríður. Það eru samt einhverjir sem líta á það þannig, ekki satt? „Ég hef ekki heyrt marga halda því fram en það má skilja dómana þannig að þannig eigi það að vera í raun, þ.e. að þingið hafi ekkert um þetta að segja. Svo sé alltaf hægt að gagn rýna ráðherra með tilvísun í mats- kennda reglu stjórnsýslulaga um rannsóknar- skyldu þegar það liggur fyrir að frestur ráðherra til að rannsaka málið er það stuttur að í samræmi við eðlilega lög skýring ahefð verði menn að túlka stærðargráðu rannsóknar í ljósi þess knappa tíma sem lögin skammta ráðherra,“ segir Sigríður. „Ég ítreka þó það sem ég sagði áður, að það er óhugsandi niðurstaða að þetta vald verði eftirlátið stjórnsýslunefndum. Í gegnum tíðina hefur oft komið upp sú umræða við skipanir dómara að ráðherra hafi þar einhver annarleg sjónarið að baki og í raun stjórn- málamenn allir ef því er að skipta. Eins og það sé enginn að vinna af heilindum sem er í stjórnmálum. Á sama tíma vita menn varla hverjir sitja í þessum stjórnsýslunefndum á hverjum tíma, hvaða hagsmuni þeir hafa eða tengsl sem gætu haft áhrif á störf þeirra. Í grunninn er þessi umræða þó mjög gamal- dags og í raun úrelt. Flestir stjórnmálamenn leitast við að vera vandaðir í störfum sínum og það hefur enginn ráðherra af því einhvern hag að vinna ófaglega að málum, t.d. við skipun dómara. Hagmunir mínir í þessum málum fara saman við hagsmuni þjóðarinnar, þ.e. að í embætti dómara séu skipaðir einstaklingar sem eru hæfir og vandaðir í sínum verkum.“ Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að það sé óhugsandi niðurstaða að andlitslausar og ábyrgðalausar stjórnsýslunefndir hafi skipunarvaldið í eina grein ríkisvaldsins.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.