Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 57

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 57
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 55 Höft og helsi er dæmt til að mistakast Það verður ekki hjá því komist að spyrja dómsmálaráðherra út í þau mál sem snúa að réttar kerfinu vegna hinna svokölluðu hrunmála en um leið því mikla eftirlitskerfi sem hefur verið komið á fót hér á landi síðastliðinn áratug. Enn er verið að rannsaka og rétta í hrunmálum, eftirlitsstofnanir halda áfram að vaxa og hið svokallaða Samherjamál er nýjasta dæmið um valdníðslu opinberra aðila. Það virðist sem stjórnmálamenn geri lítið, enn sem komið er, til að koma böndum á eftirlitsstofnanir sem hegða sér með þeim hætti sem Seðlabankinn gerði í umræddu tilviki. Rétt er að halda því til haga að Seðlabankinn heyrir ekki undir dómsmálaráðherra, en sem fyrr segir er rétt að varpa þeirri spurningu fram hvað ráðherranum finnst um þessi mál heilt á litið. „Nú liggur fyrir dómur í því máli sem þú nefnir og í sjálfu sér hef ég engu við hann að bæta. Í víðara samhengi kann málið að vera spegilmynd þess vanda sem menn stóðu frammi fyrir á árunum eftir hrun, efnislega og formlega. Menn töldu nauðsynlegt að grípa til tíma- bundinna gjaldeyrishafta sem því miður urðu alltof langvinn og fór þá formið að þvælast fyrir mönnum,“ segir Sigríður. „Höft og helsi hverskonar er dæmt til að mistakast á einn eða annan hátt. Ef það nær að þjóna tilgangi sínum frá sjónarhorni ríkisins, sem er alls ekki sjálfgefið, þá er alltaf veruleg hætta á að gengið sé á grundvallarrétt borgaranna við beitingu reglnanna.“ Að mati Sigríðar eru árin eftir hrun ekki síður lærdómsrík en árin fyrir hrun. „Í ágjöf skiptir máli að menn andi með nefinu, standi vörð um ákveðinn stöðugleika og réttar ríkið. Bankarnir hrundu jú en aðrar helstu grunnstoðir okkar samfélags stóðu storminn ágætlega af sér í heildina á litið,“ segir Sigríður. „Mönnum er auðvitað vandi á höndum þegar verða áföll eins og bankahrunið sem eru úr takti við öll hlutföll í þjóðfélaginu. Og gagnrýni á það sem var gert verður alltaf því marki brennd að menn hafa ekki samanburð við þær leiðir sem ekki voru farnar. Það var ekki óvænt að menn myndu láta reyna á alls konar gjörninga fyrir dómi en með tímanum þegar litið er til baka er ég ekki viss um að hægt sé að fullyrða að innstæða hafi verið fyrir öllum þessum málarekstri. Margir hafa átt um sárt að binda vegna þessara mála og ég vona innilega að þeir láti þau ekki byrgja sér sýn þegar horft er fram á veginn.“ Sigríður tekur undir þá skoðun að eftirlitsþjóðfélagið sé sífellt að vaxa og hefur efasemdir um ágæti þess. „Við megum heldur ekki gleyma því að reglur um fjármálamarkað voru bæði miklar og flóknar fyrir árið 2008. Það var mikið eftirlit með fjármálastarfsemi, hér sem annars staðar á Vesturlöndum og löggjafinn hafði sett alveg gríðarlega margar reglur um fjármálafyrir- tæki. Það eru fá ef nokkur dæmi í sögunni um starfsemi sem laut fleiri reglum,“ segir Sigríður. „En allt kom fyrir ekki þannig að menn þurfa stundum líka að horfast í augu við það að stundum eru áföll óhjákvæmileg og það er ekki hægt að koma í veg fyrir þau öll með reglum og eftirliti. Það má heldur ekki skapa falskar væntingar manna til þess að með eftirlitinu þurfi menn ekki að hafa vit fyrir sjálfum sér. Þetta er alltaf mikið álitaefni og við lagasetningu þarf löggjafinn að huga vel að þessu, þ.e. þegar það er verið að afhenda eftirlitsstofnunum sektarheimildir og önnur verkfæri til að beita viðurlögum. Þetta er þunn lína, hvenær farið er yfir það sem eðlilegt má teljast í ljósi þeirra réttarfarsreglna sem hér ríkja.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.