Þjóðmál - 01.12.2018, Side 61

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 61
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 59 Ég stóð vaktina þegar ríkiseinokun ljós vakans var brotin á bak aftur og hóf störf þegar sjónvarp var bara sex daga vikunnar, ellefu mánuði á ári. Reagan og Gorbatsjov hittust í Höfða og eins og áður sagði hrundi SÍS með brauki og bramli og Hafskip strandaði með miklu brambolti svo að Útvegsbankinn féll og Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði. Hafskip var keyrt í þrot og forráðamenn hnepptir í varðhald og ákærðir. Gjaldþrot Hafskips Í desember 1985 var Hafskip úrskurðað gjaldþrota og í maí 1986 dró til tíðinda. Ég var fyrir utan Sakadóm í Borgartúni þegar Hafskipsmenn voru leiddir inn í Sakadóm einn af öðrum af fílefldum lögreglumönnum. Þetta var skömmu fyrir fréttir. Þetta var fyrir daga beinna útsendinga af fréttaviðburðum svo keyrt var í hendingskasti með myndir úr Borgartúni upp á Laugaveg 176, þar sem Sjónvarpið var til húsa. Björgólfur Guðmundsson og Ragnar Kjartans- son, ásamt nokkrum yfirmönnum Hafskips, höfðu verið handteknir í morgunsárið og nú átti að úrskurða þá í gæsluvarðhald. Hinir handteknu voru þekktir menn í íslensku þjóðlífi og handtaka þeirra að sönnu stórmál. Dramatískar myndir af Hafskipsmönnum voru sendar upp á fréttastofu og pródúsent „klippti“ fréttina meðan ég var ennþá í Borgar- túni. Allt ætlaði vitlaust að verða á landinu bláa. Aldrei í sögunni hafði viðlíka frétt verið birt í sjónvarpi né myndir af sakborningum. Sjónvarpið var óspart gagnrýnt fyrir fréttina. Tæpum mánuði síðar „játaði“ Guðmundur „Jaki“ Guðmundsson formaður Dagsbrúnar í beinni á 17. júní að hafa þegið peninga frá óvinunum Eimskip og Samskip og það úr hendi kapítalistans Alberts Guðmundssonar. Jakinn hafði verið að jafna sig eftir erfið veikindi. Hann var hrakinn úr pólitík af flokkseigendum Alþýðubandalagsins. Sjón- varpið var sakað um að brjóta gegn helgi þjóðhátíðardagsins. Íhaldið klofnar í beinni útsendingu Albert Guðmundsson var flæmdur úr ríkis- stjórn, en hann hafði verið stjórnarformaður Hafskips. Hann hafði þegið tvær greiðslur frá Hafskip en ekki gefið upp til skatts og sagði þær hafa verið afslætti vegna fyrirtækis síns. Albert hafði áður verið bolað úr fjármála- ráðuneytinu til þess að rýma fyrir formanni Sjálfstæðisflokksins, Þorsteini Pálssyni. Albert hafði þá farið í iðnaðarráðuneytið. Sjálfstæðisflokkurinn klofnaði í beinni á út mánuðum 1987 hjá okkur Ingva Hrafni Jónssyni eftir að hinn lánlausi Þorsteinn Páls- son hafði útilokað að Albert ætti afturkvæmt í ráðherrastól. Þetta hafði Þorsteinn sagt í beinni á Stöð 2 í samtali við Pál Magnússon og Ólaf E. Friðriksson. „Það kemur ekki til greina að Albert verði ráðherra,“ sagði Þorsteinn Pálsson. Við Ingvi Hrafn bárum ummælin undir Albert og það bókstaflega „kviknaði“ í skiptiborði Sjónvarpsins. Það reis samúðarbylgja með Alberti. Fólk hringdi látlaust inn og fjölmargir mættu fyrir utan sjónvarpshúsið. „Þetta getur Þorsteinn ekki sagt,“ sagði Albert. Borgaraflokkurinn varð til. Málin höfðu snúist í höndum Þorsteins. Borgara flokkurinn var stofnaður og fékk 10,9% atkvæða. Sjálfstæðisflokkurinn galt afhroð. Pólitíkin er skrítin tík. Jón Baldvin hafði fært Hafskip í ræðupúlt Alþingis svo allt varð vitlaust enda taldi Jón Baldvin sig koma höggi á Sjálfstæðisflokkinn. Það lá í augum uppi enda Albert Guðmunds- son einn helsti leiðtogi sjálfstæðismanna og stjórnarformaður Hafskips. En vopnin snerust í höndum Jóns Baldvins. Kratar höfðu farið með himinskautum í skoðanakönnunum með um og yfir 30% fylgi. Albert tók óánægjufylgið og kratar fengu bara helming fylgis sem kannanir höfðu gefið til kynna. Hannes Hólmsteinn kenndi okkur Ingva Hrafni um klofning íhaldsins og minn gamli ritstjóri Styrmir Gunnarsson öskraði á mig í bræðikasti hálfur uppi á skrifborði sínu í Aðalstræti. Vinur minn ritstjórinn var hamslaus af reiði.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.