Þjóðmál - 01.12.2018, Side 67

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 67
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 65 Fasteignamarkaður Vandamálin sem við stöndum frammi fyrir á sænska húsnæðismarkaðnum eru oft svipuð þeim sem aðrar þjóðir eiga við að glíma. Við höfum þó okkar eigin sérstöku vandamál sem gætu orðið öðrum þjóðum, sem íhuga að fara sömu leiðir, til viðvörunar. Vandinn sem við stöndum frammi fyrir nú og deilum með mörgum öðrum þjóðum er húsnæðis- skortur. Þá er fyrsta spurningin sem við spyrjum okkur: Hvað er átt við með húsnæðisskorti? Ef litið er til þess hvernig fyrirhugað er að leysa vandann, alltént í Svíþjóð, er húsnæðis- skortur túlkaður sem of lítið framboð á hús- næði. Það þýðir að hægt sé að leysa vandann með því að byggja fleiri hús. Það sem kemur illa við talsmenn þessarar túlkunar er að húsnæðisskortur hefur verið viðvarandi allt frá lokum síðari heims- styrjaldar innar og þá skiptir engu hversu mikið af nýju húsnæði kemur á markaðinn. Svíar hafa aðeins einu sinni komist nálægt því að leysa þennan vanda, á árunum 1965 til 1975 (með því að fara í hið svokallað milljónaprógramm), en kostnaðurinn við það var gífurlegur. Lítil og stundum engin eftirspurn var eftir húsnæðinu sem reist var í þessu verkefni ríkisins og mörg sveitar- félög áttu á hættu að verða gjaldþrota. Ríkisstjórnin forðaði þeim frá því með því að veita þeim lán. Nú er staðan sú að helstu vandamálahverfin, einangruð hverfi þar sem glæpatíðni er há, voru öll byggð á þessu tíu ára tímabili í sögu Svíþjóðar. Fredrik Kopsch Lærdómurinn af sænska húsnæðismarkaðnum Frá Stokkhólmi í Svíþjóð.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.