Þjóðmál - 01.12.2018, Side 71

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 71
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 69 Flestar konur gengu í sams konar fötum vegna þess að verslanir buðu ekki upp á neitt úrval. Á einu tímabili virtist sem allar konur í Varsjá hefðu ákveðið að lita hárið á sér með sama rauða litnum vegna þess að hann var sá eini sem efnaverksmiðjurnar framleiddu. Konur í Búdapest, Prag, Sofíu og Austur- Berlín kvörtuðu allar undan því sama: „Engir svitalyktareyðar eða ilmvötn voru til og stundum jafnvel hvorki sápa né tannkrem … Verst af öllu var að engin dömubindi voru til. Hvað er hægt að segja annað en að þetta hafi verið niðurlægjandi?“ Í kommúnistaríkjunum var þess vænst að konur ynnu utan heimilisins og sinntu líka öllum heimilisstörfum. (Engels taldi að það væri „brjálæðislegt“ að karlar sinntu slíkum störfum: heimilisstörf „svipta menn karlmennskunni“) . Konurnar sem stóðu fyrir heimilis rekstrinum fundu fyrstar fyrir skortinum og það var þeirra hlutskipti að finna eitthvað sem kom í staðinn fyrir hvers- dagslegan varning. Alvarlegur skortur var á matvælum, ungbarnamjólkurdufti, húsnæði og um það bil öllu öðru. Ríkið útvegaði húsnæði með því að skipta upp þeim íbúðum sem til voru og láta fólk sem þekktist ekkert búa saman í æ minna rými, eins og lýst er í ritgerð Josephs Brodsky „In a Room and a Half“ . Oft varð baðherbergið líka að þjóna sem eldhús (sem margar fjölskyldur deildu) og lítil skot voru talin svefnherbergi fyrir margt fólk. Ríkið útvegaði barnagæslu en biðlistar voru oft langir. Ríkið tryggði konum störf en einnig gat verið skortur á þeim. Í Júgóslavíu var meðalbiðtími eftir starfi þrjú ár. Á sjötta áratugnum lýstu skipuleggjendur ríkisins í Júgóslavíu því yfir að salernis- pappír væri óþörf munaðarvara og skipuðu verksmiðjum að hætta að framleiða hann. Árum saman þurfti fólk að nota dagblöð (aldrei var skortur á pappír til að prenta áróður á). Á meðal annars yfirlýsts óþarfa- varnings voru kvenhattar, hanskar, þvotta- efni, barnaleikföng, mjólk og kjöt. „Almenna reglan var sú að allt gat hvenær sem var orðið yfirlýst munaðarvara,“ skrifar Draculić. Einkum var hætt við að vörur sem konur notuðu féllu í þann flokk. Bandaríkjamann sem fór til kommúnista- ríkjanna á níunda áratugnum rak í rogastans þegar hann komast að raun um að konur þvoðu enn þvotta eins og þær gerðu í Banda- ríkjunum fimmtíu árum áður. Þær höfðu engar þvottavélar. Í öllum kommúnista ríkjunum lögðu konur þvottinn í bleyti í járnbala, beygðu sig svo yfir balann og skrúbbuðu þvottinn á þvottabretti, suðu hann síðan á eldavélinni og hrærðu í með langri sleif. Þetta flókna ferli tók heilan dag í hverri viku og hendur kvennanna bólgnuðu, sprungu og voru þaktar sárum. Engir gúmmíhanskar voru framleiddir til að verja húðina á höndum þeirra – skipuleggjendur hagkerfisins sáu enga ástæðu til að selja þá. Þeir karlar sem sáu um skipulagið hafa að líkindum aldrei þurft að vinna þetta „kvenmannsverk“. Skortur á þvottaefni var útbreiddur í kommúnista ríkjunum. Kona í Sofíu sagði við Draculić: „Þegar ég finn það kaupi ég tvo eða þrjá stóra pakka. Maður getur aldrei verið viss um að það verði til aftur.“ Hún hafði aldrei heyrt talað um þurrkara. En ef þvottavélar og þurrkarar hefðu verið til hefði títt rafmagns- leysi orðið til þess að ekki var hægt að reiða sig á slík tæki. Kommúnistaríkin framleiddu ekki vélar sem léttu konum lífið af sömu ástæðu og þau vanræktu aðrar þarfir þeirra og langanir. Þrátt fyrir allar kvartanirnar yfir gróðasjónarmiðum ýta markaðir undir að fólk uppfylli þarfir annarra með frjálsum viðskiptum. Í ríkis- reknu hagkerfi eru engir slíkir hvatar. Enginn skortur er á kommúnískum fagurgala um kynjajafnrétti en hann getur ekki bætt upp fyrir hræsnina og misréttið sem gegnsýrir miðstýrt hagkerfi. Chelsea Follett er ritstjóri vefsíðunnar HumanProgress.org. Greinin birtist á vef CAPX en er hér birt í íslenskri þýðingu með góðfúslegu leyfi höfundar.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.