Þjóðmál - 01.12.2018, Side 75

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 75
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 73 Skák Heimsmeistaraeinvígið í skák var haldið í London dagana 9.-28. nóvember. Um titilinn börðust tveir stigahæstu skákmenn heims; Norðmaðurinn Magnús Carlsen og ítalsk- ættaði Bandaríkjamaðurinn Fabiano Caruana. Margt óvenjulegt Einvígið var fyrir marga hluti sérstakt. Leita þarf aftur til ársins 1990 til einvígis þar sem tveir stigahæstu skákmenn heims mætist, en þá tefldu Kasparov og Karpov fimmta einvígi sitt um titilinn. Enn fremur var þetta í fyrsta skipti síðan í Reykjavík 1972 sem Bandaríkja maður tefldi um æðstu metorð í skák heiminum. Og þetta var í fyrsta skipti í sögunni sem öllum skákum heimsmeistara- einvígis lauk með jafntefli. Einvígið var alls 12 skákir en hér áður fyrr, t.d. í Reykjavík 1972, voru tefldar 24 skákir. Margir gagnrýna hversu stutt einvígin eru í dag, en það verður óneitanlega til þess að keppendur taka minni áhættu. Gunnar Björnsson Magnús Carlsen varði heimsmeistaratitilinn Verður einvígið haldið í Reykjavík 2022?

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.