Þjóðmál - 01.12.2018, Qupperneq 80

Þjóðmál - 01.12.2018, Qupperneq 80
78 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Lægri aðgangshindranir og fleiri valkostir fyrir neytendur Í gegnum tíðina hefur verið rætt um að aðgangshindranir séu miklar á fjármála- markaði – að erfitt sé fyrir nýja aðila að koma inn á markaðinn. Það er vissulega rétt að það er flókið og kostnaðar samt að uppfylla öll þau skilyrði sem gerð eru til leyfisskyldra fjármálafyrirtækja. En fjártæknin og tæknibreytingar hafa lækkað þessar aðgangshindranir og fjölgað valkostum neytenda. Í þessu samhengi er vert að nefna hversu sterk staða neytenda er orðin á fjármála- markaði. Að mörgu leyti hafa breytingar á lögum og reglum undanfarin áratug leitt til þess að skiptikostnaður neytenda við að beina viðskiptum sínum frá einum stað til annars hefur lækkað verulega. Mikilvægi jafnrar samkeppnisstöðu Eitt helsta áherslumál SFF er að íslenskur fjármálamarkaður búi við sömu reglur og skilyrði og önnur fjármálafyrirtæki sem starfa á hinu sameiginlega evrópska markaði. Því miður er það ekki raunin í dag. Ýmis íslensk sérákvæði eru fléttuð saman við evrópskar reglur þegar þær eru innleiddar hér á landi. Við þetta bætist að skattaumhverfi aðildar- félaga SFF er sérstaklega íþyngjandi og einsdæmi í Evrópu og þó víðar væri leitað. Hér á landi eru þrír skattar lagðir sérstaklega á fjármálafyrirtæki: bankaskattur, sérstakur fjársýsluskattur og fjársýsluskattur á launa- greiðslur. Bankaskatturinn veldur markaðsbresti Bankaskatturinn, sem er í raun skattlagning á innlán og skuldabréfafjármögnun fjármála- fyrirtækja, er um 10 sinnum hærri hér á landi en tíðkast hjá þeim örfáu Evrópulöndum sem leggja á slíkan skatt. Sambærilegir skattar eru ekki lagðir á önnur fjármálafyrirtæki sem starfa á hinum sameiginlega evrópska fjármálamarkaði. Bankaskatturinn er skattur á markaðs- fjármögnun banka um tugi prósenta. Skattur sem að endingu leggst á kjör almennings og fyrirtækja – og kemur líklega harðast niður á minni fyrirtækjum. Það hefur verið rætt um hvað megi gera til þess að ná niður vaxtakostnaði í aðdraganda kjarasamninga. Fullt afnám banka skattsins og endurskoðun skatta umhverfis aðildar- félaga SFF gæti hjálpað þar til. Bankaskatturinn bjagar stórlega samkeppnis- umhverfið og veldur í raun markaðbresti. Í honum felst að það er verið að hygla erlendum bönkum og lífeyrisjóðum og veikja bankakerfið hér á landi. Bankaskatturinn eykur fjármálalega kerfisáhættu Þessi mikla skattlagning hefur þannig víðtæk áhrif. Hún eykur rekstrarkostnað fjármálafyrirtækja og veikir samkeppnisstöðu þeirra. Afleiðingarnar eru m.a. að lán veitingar og fjármálaþjónustan flyst til aðila sem ekki lúta eftirliti FME. Með öðrum orðum ýtir skattlagningin undir skuggabankastarfsemi sem eykur fjármálalega kerfisáhættu. Á sama tíma og kostnaður fjármálakerfisins er gagnrýndur þá er kvartað yfir hagræðingaraðgerðum. Það er mikilvægt að halda staðreyndum til haga í þessum málum, ekki síst vegna þess að fyrirsjáanlegt er að þróunin verði áfram í þessa átt og fjármálaþjónusta verði í æ ríkari mæli stafræn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.