Þjóðmál - 01.12.2018, Page 84

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 84
82 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Á þessari hátíðarstundu þykir forsætisráðherra hyggilegast að láta nægja að segja frá heilla- óskum skeytisins. Þar er kominn sá boðskapur sem hann hafði tveimur vikum áður í trúnaði bent konungi á að miklu gæti skipt að bærist - og í lengstu lög vonað að honum þóknaðist að senda áður en lyki. Upphafsorð skeytisins urðu að vera þar vegna þess sem á undan var gengið ella hefði textinn ekki verið raun sannur. En það var í hvorugs þágu, konungs eða Íslendinga, að þau yrðu látin koma í veg fyrir að kjarni skeytisins - árnaðaróskir konungs - næði að hafa sín tilætluðu farsælu áhrif. Ekki er nú vitað hvar þetta sögufræga símskeyti, frumrit þess, er niðurkomið. Það skiptir raunar ekki máli að öðru leyti en því er minjagildið varðar því að orðalag þess er þekkt og óumdeilt. Ef til vill á það við frekari leit í skjalasöfnum aftur eftir að koma óvænt, síðbúið og kært upp í hendur manna. ­ Ólafur Egilsson Þegar Danmörk kvaddi Ísland Símskeyti konungs 17. júní 1944 ­ eftir Nils Svenningsen8 Lítil atvik geta oft haft mikil áhrif, til góðs eða ills. Dæmi um hið síðarnefnda er Emsorðsendingin svonefnda sem margir aðrir en sagnfræðingar muna eftir úr sögu- kennslu í skóla. Það var símskeytið sem kom af stað styrjöldinni milli Frakka og Prússa árið 1870 en hún varð Frökkum þung í skauti. Þeir misstu Alsace-Lorraine og urðu að þola þá smán að Vilhjálmur Prússakonungur var við þýsk hátíðarhöld í Versalahöll lýstur keisari yfir nýja þýska keisaradæminu. Frakkar urðu ennfremur að greiða Prússum stríðsskaða- bætur sem námu 5 milljörðum franka. Dæmi um hið gagnstæða, að lítið atvik geti haftmikil áhrif til heilla, er annað sögulegt sím skeyti, heillaóskaskeyti Kristjáns konungs tíunda - og þar með konungs- ríkisins Danmerkur- sem konungur sendi Alþingi Íslendinga 17. júní 1944, daginn sem Íslendingar slitu einhliða sambandinu við Dani og lýstu yfir sjálfstæðu lýðveldi með forseta sem æðsta mann ríkisins. Það var ekki einkamál konungs að senda slíkt símskeyti. Það var ríkismálefni. Hefði konungur búið við venjulega ríkisstjórn, hefði hann samkvæmt stjórnarskránni orðið að ganga úr skugga um að utanríkisráðherrann mundi samþykkja slíka kveðju. En 29. ágúst 1943 höfðu Þjóðverjar raskað svo stjórnarhögum í ríkinu að ríkisstjórn hefði með samþykki konungs látið stjórn ríkisins í hendur ráðuneytis stjórunum. Það var því ráðuneytis- stjórinn í utanríkisráðuneytinu sem var hið rétta og ábyrga yfirvald í utanríkismálum við þessar aðstæður. Konungsritarinn, Gunnar Bardenfleth kammer herra, sneri sér því til ráðuneytis- stjórans í utanríkisráðuneytinu til þess að fá skoðun hans á því hvort rétt væri að senda slíkt heillaóskaskeyti nú. Ráðuneytisstjórinn áleit að það væri afar æskilegt að Hans Hátign gerði alvöru úr þeirri hugmynd. Síðan var eftirfarandi skeyti sent ríkisstjórn Íslands hinn 16. júní 1944: Þótt mér þyki leitt, að skilnaðurinn milli mín og íslensku þjóðarinnar hefur verið framkvæmdur á meðan svo stendur á sem nú er, vil ég láta í ljós bestu óskir mínar um framtíð íslensku þjóðarinnar og von um, að þau bönd, sem tengja Ísland við hin norrænu lönd, megi styrkjast. - Christian R. 9 Forsaga þessa atburðar átti rætur sínar að rekja mjög langt aftur í tímann. Hér verður einungis í stuttu máli rifjað upp hvernig samband Danmerkur og Íslands hafði þróast undangenginn aldarfjórðung. Við lok heimsstyrjaldarinnar fyrri árið 1918, þegar Evrópukortinu var gjörbreytt, þótti eðlilegt að stjórnmálasamband Dana og Íslendinga væri endurskoðaða og aðlagað nýjum aðstæðum. Í ljósi þess hve sérstætt lagalegt og stjórnmálalegt samband Íslands og Danmerkur hafði hingað til verið, var augljóst að slíkar breytingar urðu að gerast með sam-

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.