Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 87

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 87
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 85 yfir því að Íslendingar höfðu orðið að breyta eins og þeir gerðu. Einnig hefur maður á tilfinningunni að skilja megi skeytið sem hljómsterkt samþykki Íslendinga við von konungs um áframhaldandi góð samskipti landanna tveggja innan vébanda norræns samstarfs. Hið góða vináttusamband sem nú ríkir milli landanna og hefur ríkt milli þeirra frá lokum síðari heimsstyrjaldar er ánægjuleg sönnun þess að aðskilnaðurinn árið 1944 hefur ekki skilið eftir sig nein ör. Símskeytin tvö báru þessum tveimur ríkjum af sama ævagamla norræna stofni verðugt vitni. Skeyti Kristjáns konungs 17. júní 1944 sýndi vel hve konungur gerði sér góða grein fyrir öllum aðstæðum og hversu gott skynbragð hann bar á stjórnmál - en þessir hæfileikar hans komu Dönum oft í góðar þarfir meðan landið var hernumið. Hér er m.a. átt við þær aðstæður þegar ögranir Þjóðverja vöktu ólgu og sérstakur vandi skapaðist í landinu, t.d. 9. apríl 1940, 29. ágúst 1943 og haustið 1942 þegar Hitler sendi konungi heillaóskaskeyti í tilefni afmælis hans.12 Konungur komst aldrei úr jafnvægi. Án þess að sýna nokkur merki um veiklyndi hafði hann aðdáunarverða sjálfstjórn þó svo það hljóti að hafa freistað hans að bregðast við á annan hátt og láta hugrenningar um eigin hagsmuni sína hafa forgang. Skyldurækni hans sem fremsta þjóns ríkisins sigraði. Einnig þegar Íslendingar slitu sambandinu við Dani einhliða. Sögulegt mikilvægi símskeytisins fyrir áfram- haldandi samskipti Danmerkur og Íslands og fyrir norrænt samstarf er ómetanlegt. Það var einfaldlega mikilvæg forsenda þeirra samn- ingaviðræðna sem fóru fram milli Íslands og Danmerkur eftir stríðslok. Á undanförnum árum hafa Danir upplifað 40 ára afmæli ýmissa atburða sem gerðust í upphafi fimmta áratugarins og allir eiga rætur að rekja til hernáms Þjóðverja í Danmörku. Sá atburður sem hér um ræðir, 17. júní 1944, tengdist hernámi Þjóðverja ekki beint, þó að það, ásamt tengslum Íslands við vestur- veldin, kæmi í veg fyrir að hægt væri að framfylgja þeirri aðferð sem sambandslögin frá 1918 kváðu á um - en það verður einnig að viðurkenna, og ber að leggja áherslu á, að Íslendingar voru ekki með sambands- slitunum að notfæra sér nauðungarastand Dana. Þó að samningaviðræður hefðu verið mögulegar, hefði niðurstaðan eflaust orðið sú að Íslendingar hefðu krafist sambandsslita og hugsanleg andstaða af hálfu Dana verið árangurslaus. Símskeyti Kristjáns konungs varð fagur og virðulegur endir á aldalöngu sambandi Íslands og Danmerkur. Birtist í íslenskri þýðingu í Sögu, tímariti Sögufélagsins, tbl. XXII árið 1984. Unnur Ragnarsdóttir þýddi. Endurbirt hér með góðfúslegu leyfi Sögufélagsins. 1. Björn Þórðarson: Alþingi og frelsisbaráttan 1874-1944. Í Saga Alþingis III. bindi. Rvk. 1956, bls.626. 2. Jón Krabbe: Frá Hafnarstjórn til lýðveldis. Rvk. 1959, bls. 190. 3. Jón Krabbe, tilv. rit, bls.191. 4. Kristján Albertsson sagði höfundi eftir Jakobi Möller. Höfundur einnig eftir Baldri Möller. 5. Jón Krabbe, tilv. rit, bls. 192. 6. Jón Krabbe. tilv. rit, bls. 194-95. 7. Texti skv. hljóðuppröku í vörslu Ríkisútvarps. 8. Ritstjórar Sögu hafa bætt við neðan- og aftanmáls- greinum. 9. Björn Þórðarson: Alþingi og frelsisbaráttan, 1874-1944. Í Saga Alþingis. III. bindi. Rvk. 1956, bls. 638. 10. Þessi ummæli má einnig finna hjá Jóni Krabbe í Erindringer fra en lang Em bedsvirksomhed. Kbh. 1959, bls. 96. Hér er stuðst við íslenska þýðingu verksins eftir Pétur Benediktsson í Frá Hafnastjórn til lýðveldis. Rvk. 1959, bls. 159. 11. Björn Þórðarson, tilv. rit, bls.639. 12. og hausið ­ hans er þýðing á orðum danska textans tel- egramkrisen i efteråret 1942. Heillaóskaskeyti Hitlers mun hafa verið nokkuð hástemmt en svarskeyti konungs afar stuttaralegt enda móðgaðist þýski foringinn og snurða hljóp á þráðinn í sambúð Dana við þýska hernámsveldið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.