Þjóðmál - 01.12.2018, Side 88
86 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018
Utanríkismál
Tengslin styrkt
Íslenskir eftirlitsmenn með þingkosningum í Rússlandi eftir hrunið 1991.
Nú er liðinn aldarfjórðungur frá því að fyrstu
þingkosningarnar í Rússlandi eftir hrun Sovét-
ríkjanna fóru fram, n.t.t. 12. desember 1993.
Nokkur ólga hafði verið í landinu á árunum á
undan og Boris Jeltsín, þáv. forseti Rússlands,
vonaðist til þess að geta styrkt stöðu sína með
nýjum kosningum. Kosninga fyrirkomulagið í
landinu leiddi þó til þess að það tókst ekki og
áfram skorti hann þann meirihluta á þingi sem
til þurfti til að koma umbótum sínum fram.
Tveir eftirlitsmenn komu frá Íslandi til að fylgjast
með framkvæmd kosninganna, Magnús
Óskarsson sem tilnefndur var af Davíð Odds-
syni þáv. forsætisráðherra, og Ólafur Ragnar
Grímsson, sem tilnefndur var af Evrópuráðinu.
Magnús sinnti kosningaeftirliti í Moskvu en
Ólafur Ragnar utan borgarinnar.
Ólafur Egilsson var á þessum tíma sendiherra í
Moskvu. Hér á síðunni eru birtar til gamans og
upprifjunar myndir úr hádegisverðarboði sem
Ólafur hélt með Alexander Yakovlev, sem þá
starfaði fyrir Jeltsín, þann 8. desember 1993,
nokkrum dögum fyrir kosningarnar. Ólafur
hafði kynnst Yakovlev lítillega og nýtti tæki-
færið á meðan Magnús dvaldi í Moskvu til að
styrkja þau tengsl enn frekar.
Hádegisverðinn sat jafnframt Finnbogi Rútur
Arnarson sendiráðunautur.
Yakovlev var áður náinn samstarfsmaður
Mikhail Gorbachev, síðasta leiðtoga
Sovét ríkjanna. Í bókinni Revolutionary Russia
18911991, eftir verðlaunahöfundinn Orlando
Figes, er Yakovlev sagður vera „höfundur
perestroika“ (e. the main intellectual force
behind perestroika), þeirrar stjórnmálastefna
sem Gorbachev mótaði til að vinda ofan af
miðstýringu kommúnismans í Sovétríkjunum
og gera hagkerfið þar í landi sjálfbærara.
Yakovlev var kunnur Íslandi því hann var einn
af nánustu ráðgjöfum Gorbachev á leiðtoga-
fundinum í Höfða árið 1986.
Þeir Gorbachev voru mjög nánir og hádegis-
verðarboði sagði Yakovlev sessunautum sínum
frá því að markvisst hefði verið unnið að því
að stía þeim Gorbachev í sundur í aðdraganda
valdaránstilraunarinnar í ágúst 1991, þegar
harðlínumenn í Kommúnista flokknum reyndu
að hrinda Gorbachev úr sessi. Jeltsín greip þó
í taumana og eftir fall Sovétríkjanna starfaði
Yakovlev að mikilvægum málum fyrir Jeltsín.