Þjóðmál - 01.12.2018, Qupperneq 89

Þjóðmál - 01.12.2018, Qupperneq 89
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 87 Bókarýni Magnús Þór Hafsteinsson Stórfróðleg bók um sögu Finnlands Milli steins og sleggu – Saga Finnlands Höfundur: Borgþór Kjærnested Útgefandi: Skrudda Reykjavík, 2017 423 bls. Finnland er að mörgu leyti framandi land í hugum okkar Íslendinga, jafnvel þó það heyri til Norðurlanda og við lítum á Finna sem okkar frændþjóð - sem þeir vitanlega eru. Bæði er landið nokkuð fjarri Íslandi landfræði- lega séð; haf og himinn, Noregur og Svíþjóð skilja á milli. Þá eru bein söguleg tengsl Íslands og Finnlands ekki mikil í aldanna rás. Að lokum mætti síðan vafalítið tefla fram þeirri staðreynd að fátt eða ekkert er líkt með íslensku máli og finnsku. Jafnvel þeir Íslend- ingar sem eru vel að sér í dönsku, norsku eða sænsku skilja lítt í hinu forna máli finnsku (einu elsta tungumáli Evrópu), nema þeir hafi lært hana sérstaklega. Hér skal þess þó getið að margir Finnar eru vel að sér í sænsku og hafa þannig þokkalegt vald á hinum norrænu tungunum nema ef vera skyldi íslensku, færeysku og grænlensku. Þetta þarf þó ekki að þýða að við eigum ekkert sameiginlegt með Finnum. Að sjálf- sögðu er það ekki svo. Við deilum norrænum menningararfi, erum þjóðir sem lifað hafa af náttúrunytjum á norðlægum slóðum. Margt er líkt með skyldum. Jón Baldvin Hannibalsson fyrrum ráðherra meitlar þetta mjög vel í orð í inngangi sem hann skrifar að þessari bók. Þar er ekkert ofsagt. Hann segir m. a.: „Þrátt fyrir margt sem aðskilur eiga Finnar og Íslendingar fleira sameiginlegt en við blasir við fyrstu sýn. Báðar lutu þessar þjóðir öldum saman stjórn annarra norrænna þjóða. Í tilviki Finna voru þeir eðlilegur hluti sænska ríkisins, þar til Rússakeisari hnekkti yfirráðum þess á 19. öld. Finnland og Ísland urðu sjálfstæð og fullvalda ríki um og upp úr fyrra stríði. Hvorugri þjóðinni var spáð velfarnaði í upphafi vegferðar. Báðum hefur þessum þjóðum tekist að láta hrakspárnar verða sér til skammar. Báðar eiga þessar þjóðir djúpar menningalegar rætur, kenndar við Kalevala og Eddu. Og búa yfir nægri þrjósku til að varðveita sín fornu tungumál sem fáir skilja.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.