Þjóðmál - 01.12.2018, Page 91

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 91
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 89 Bæði fyrr og síðar hafa Finnar dregist inn í stríðsátök á norðurslóðum, fyrst vegna þess að þeir heyrðu undir hina herskáu Svía en síðar vegna þess að þeir hljóta að teljast óheppnir með landfræðilega legu sína mitt á milli Norðvestur-Rússlands og Vesturlanda. Á taflborði alþjóða stjórnmála, spennuástands og beinna stríðsátaka á norðurslóðum hafa Finnar iðulega lent á milli steins og sleggju. Titill bókarinnar er þannig réttnefni. Hér skortir ekkert á dramatík þegar sagan er sögð. Í þessari bók er margt sem vekur forvitni. Hún er mjög góð innleiðing í ýmsa þætti í sögu Svíþjóðar og Finnlands og prýðilegt uppsláttar rit enda geymir hún hafsjó af upplýsingum. Nafnaskrá er aftast í bókinni sem eykur gildi hennar að þessu leyti. Enn betra hefði verið ef örnefnaskrá hefði líka fylgt. Textinn er ágætur og oft lipurlega skrifaður, prentvillur að séð varð eru fáar eða engar. Það sem ég saknaði helst var að myndir hefðu mátt fylgja með fyrri hluta bókarinnar. Þar er sagan oft flókin og mörg mannanöfn koma fyrir. Myndir hefðu skýrt málin og lífgað upp á þann texta. Það er ekki fyrr en komið er sögu inn í 20. öldina að myndir takast að birtast. Ég saknaði þess líka að ekki væru betri kort með bókinni. Aðeins eitt slíkt er að finna í upphafi hennar en það hefði mátt vera stærra og skýrara. Kort eru mikilvæg í svona bókum þar sem mikið er talað um staðarnöfn í lýsingum atburða og landið að mörgu leyti framandi þeim sem ekki hafa sótt það heim eða búið þar. Efnisyfirlitið hefði líka mátt vera ítarlegra. Þar eru bara nefnd kaflaheiti en Borgþór skiptir köflum bókarinnar síðan í undirkafla með millifyrirsögnum. Þær eru ekki tilgreindar í efnisyfirlitinu. Þetta eru þó allt minni háttar aðfinnslur. Heilt yfir þá er Milli steins og sleggju eftir Borþór Kjærnested stórfróðleg bók um sögu Finn- lands en einnig að stórum hluta um sænska sögu. Höfundur á miklar þakkir og heiður skilinn fyrir að hafa tekið þessa sögu saman og fært okkur á íslensku með jafn vönduðum hætti. Rit hans er einstætt stórvirki að því leyti hér er skrifuð með heildstæðum hætti saga Norðurlandaþjóðar á íslensku. Ég veit ekki til þess að nokkur hafi gert þetta svona ítarlega fyrr. Þetta er rit sem ætti að finnast í fórum allra sem hafa áhuga á sögu og stjórn- málum, og að sjálfsögðu á öllum skóla- og almenningsbókasöfnum. Útgáfa þessarar bókar ætti að gefa tilefni til umræðu um að bækur af sama tagi þyrftu líka að vera til á íslensku um Danmörku, Noreg, Svíþjóð, Færeyjar, Grænland og jafn- vel fleiri nágrannalönd. Saga þessara þjóða er að mörgu leyti samofin sögu okkar. Með því að læra meir um sögu nágranna okkar skilur maður betur ýmsa þætti í sögu Íslands. Þetta er nokkuð sem mér hefur að minnsta kosti orðið ljósara íhugunarefni en áður á síðustu vikum og mánuðum, bæði með því að lesa þessa bók Borgþórs en líka við að horfa á þætti danska sjónvarpsins um Sögu Danmerkur sem Ríkisútvarpið sýndi fyrr á þessu ári. Bókaútgefendur, hugsanlegir höfundar og aðrir þeir sem koma að útgáfu bóka á íslen- sku mættu gjarnan taka þetta til athugunar og almenningur síðan að sjálfsögðu að bregðast við með því að kaupa slíkar bækur. Svona útgáfur efla okkur að viti og vísdómi. Höfundur er rithöfundur, ritstjóri og fram- kvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.