Þjóðmál - 01.12.2018, Page 92

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 92
90 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Friðjón R. Friðjónsson Ærumissir í boði opinbers valds Ærumissir Höfundur: Davíð Logi Sigurðsson Útgefandi: Sögur Reykjavík, 2018 232 bls. Bókarýni Það er ágæt lexía fyrir þá sem telja stjórnmál dagsins í dag óvægin og hatrömm að lesa bók Davíðs Loga Sigurðssonar, Ærumissi. Bókin fjallar öðrum þræði um eitt átakamesta tímabil íslenskra stjórnmála, stjórnartíð Jónasar Jónssonar frá Hriflu sem dómsmála- ráðherra 1927-1932. Tímabil þar sem ofríkur stjórnmálamaður beitti ríkisvaldinu til hins ýtrasta til að ná sér niður á andstæðingum sínum og til að umbylta íslensku þjóðfélagi. Sagan rekur þrautagöngu Einars M. Jónas- sonar, sýslumanns Barðstrendinga, frá því að Jónas frá Hriflu verður dómsmálaráðherra og lætur það verða eitt sitt fyrsta verk að setja Einar af. Inn í söguna blandast ungir lögfræðingar sem síðar verða áhrifamenn í íslensku samfélagi, einn verðandi þingmaður og tveir verðandi forsætisráðherrar, skjól- stæðingar Jónasar, þeir Bergur Jónsson, Hermann Jónasson og Stefán Jóhann Stefánsson. Það er ljóst að ýmislegt mátti betur fara í rekstri Einars á embættinu. Einar var sýslu- maður af gamla skólanum á þriðja áratug síðustu aldar. Þá var margt venja sem okkur á 21. öldinni er algerlega framandi. Hann gerði ekki skýran greinarmun á eigin fjármálum og embættisins og eins og margir aðrir sýslu- menn þess og fyrri tíma leit hann á ýmsar sporslur sem launabætur frekar en eitthvað sem skila bæri í ríkissjóð. Hann var Jónasi því auðveld bráð. En Jónasi nægði ekki að setja Einar af heldur var gengið mjög hart að honum og teknar af honum allar eignir. Einar var stoltur maður og þess handviss að hann gæti fengið embættið aftur, að rétt lætið myndi sigra og tók því ákvarðanir sem augljóslega gengu gegn hagsmunum hans. Þannig gróf hann eigin gröf og varð að hluta útskúfaður úr samfélagi heldri manna í Reykja vík á fjórða áratug tuttugustu aldarinnar.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.