Þjóðmál - 01.12.2018, Qupperneq 93

Þjóðmál - 01.12.2018, Qupperneq 93
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 91 Um leið og sagan rekur vandræði sýslu- mannsins fyrrverandi þá er saga Jónasar frá Hriflu rakin. Jónas var einn áhugaverðasti stjórnmálamaður fyrri hluta síðustu aldar. Hann var einn stofnenda fyrsta stjórnmála- flokks vinstri manna á Íslandi, Alþýðuflokksins, snemma árs 1916 og svo lykilmaður í stofnun Framsóknarflokksins í desember sama ár, aðeins nokkrum mánuðum seinna. Hann var gríðarlega duglegur og hugmynda- ríkur en um leið var hann ósvífinn og ófyrir- leitinn stjórnmálamaður sem sveifst einskis í sókn sinni til valda. Það var og er lítill munur á stjórnlyndi þá og nú eins og sást best þegar Kristján X. Danakonungur hitti Jónas á alþingishátíðinni 1930 og sagði við hann: „Spiller De stadigvæk den lille Mussolini?“. Konungurinn sá í þeim skýrslum sem hann fékk frá Íslandi að á þeim sem lék aðalhlutverkið í stjórnmálum hér og var frumkvöðull vinstri flokkanna á Íslandi, var stigs eða stærðar en ekki eðlismunur í samanburði við fasistana í Suður-Evrópu. Heift og ákefð og jafnvel innræti Jónasar á þessum tíma sést best á því að hann lét sér ekki nægja að setja Einar af og gera hann eignalausan heldur sætti Jónas allra færa til að niðurlægja Einar, út yfir gröf og dauða. Þegar Jónas er síðar orðinn valdalaus og sér að hann nær ekki völdum aftur, bráir af honum og hann verður hatrammur and- stæðingur helstefnu kommúnista og beitir sér af afli gegn þeim þótt það hafi í engri líkingu verið við ráðherraár Jónasar. Davíð skrifar söguna lipurlega og fléttar inn í hana sögulegum þáttum og innsæi sem fyllir myndina og glæðir persónur og leikendur lífi. Sagan rekur þannig mikilvæga atburði í stjórnmálasögu undir lok þriðja og á fjórða áratugnum og fléttar þá inn í söguna. Bók Davíðs verður þannig skemmtileg skemmri skírn lykilatburða stjórnmála þess tímabils. Þannig fá þeir sem minna hafa lesið um þennan tíma góða innsýn í orðfæri og átök tímans. Það sem stendur upp úr sögunni er hve hættulegt það er þegar ósvífið fólk fær mikil völd þar sem lítið aðhald er. Sagan er harmleikur breysks manns sem á bæði við ofurefli að etja og sjálfan sig. Allar ákvarðanir Einars hitta hann sjálfan fyrir og hann virðist ófær um að taka rétta ákvörðun stoltsins vegna. Þess vegna er þessi bók prýðisgóð saga, innsýn í Ísland 20. aldarinnar. Innsýn í einsleitt og einhæft þjóðfélag sem er horfið og við flest söknum ekki mikið. Höfundur er framkvæmdastjóri. Jónas frá Hriflu. Myndin er tekin þegar Jónas er tæplega fimmtugur og hefur látið af störfum sem dóms­ og kirkjumálaráðherra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.