Þjóðmál - 01.12.2018, Page 95

Þjóðmál - 01.12.2018, Page 95
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 93 Gunnar dregur líka fram lýsingar fólks af þessum degi sem í huga þess er dýrðardagur. Við blasir allt önnur mynd en við þekkjum. Þegar í byrjun bókarinnar komum við því að einu helsta einkenni góðra sagnfræðirita - að bregða nýju ljósi á söguna. Í þessu tilfelli eina ljósmynd, en ljósmynd sem haft hefur mikil áhrif á mynd okkar af þessum merkis- viðburði. Ranghugmyndir leiðréttar Ein helsta ranghugmyndin um sjálfstæðis- baráttu Íslendinga er að henni hafi lokið 1944. Í þjóðarétti er enginn greinarmunur á hugtökunum fullveldi og sjálfstæði og því rökleysa að tala um að Ísland hafi orðið sjálf- stætt ríki 1944, eins og oft er gert og börnum jafnvel kennt í skólum. Virtir sagnfræðingar hafa meira að segja haldið því fram í nýlegum sagnfræðiritum að Íslendingar hafi alltaf ætlað að stofna lýðveldi þegar tími sambands laganna rynni út 1943. Umræða um lýðveldisstofnun kviknar þó ekki fyrr en eftir að síðari heimsstyrjöldin brýst út. Sambandslögin voru eitt og konungssam- bandið annað. Hinn 1. desember 1918 varð Danmörk erlent ríki þrátt fyrir sambands- lögin og Danir gengu í Þjóðabandalagið en Íslendingar ekki, svo dæmi sé tekið. Þannig höfðu Íslendingar sjálfstæða utanríkisstefnu þó svo að danska utanríkisþjónustan annaðist framkvæmd hennar. Gunnar Þór dregur ágætlega saman hvað raunverulega fólst í fullveldi og vitnar meðal annars til ræðu Einars Arnórssonar á Alþingi í september 1918 þar sem rætt var um sam- bandslögin: „Annað hvort er maður lifandi eða dauður; annað hvort er um fullveldi að ræða eða ekki.“ Ýmsir málsmetandi menn í okkar samtíma - þar með talið alþingismenn - mættu gjarnan kynna sér þessa sögu og þá hvað raunveru lega felst í fullveldi. Fullveldi er ekki í nokkrum stigum, það er ekki kaka sem hægt er að skera í sneiðar. Einar Arnórsson (t.v.) ­ f. 1880 d. 1955 ­ var alþingismaður Árnesinga 1914­1919 og ráðherra Íslands á árunum 1915­1917. Hann varð síðan aftur alþingismaður árin 1931­1932. Bjarni Jónsson frá Vogi (t.h.) ­ f. 1863 d. 1926 ­ var alþingismaður Dalasýslu 1908­1926. Báðir sátu þeir í sambandslaganefndinni fyrir hönd Alþingis og segja má að þeir tveir eigi hvað mestan heiður af því hve vel tókst til í samningagerðinni við Dani sumarið 1918.

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.