Þjóðmál - 01.12.2018, Side 96

Þjóðmál - 01.12.2018, Side 96
94 ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 Að tala um „framsal fullveldis“ og „fullveldis- afsal“ er því rökleysa. Eitt helsta einkenni fullvalda ríkja er þjóðréttarhæfi, þau geta gert alþjóðasamninga - í krafti fullveldisins. Þeir samningar geta þó auðvitað verið óhag- stæðir eftir atvikum en ríkið er jafnfullvalda fyrir því. Ísland var því til að mynda ekki minna full- valda þó svo að konungurinn væri erlendur. Ekki frekar en fjölmörg fullvalda ríki fyrr og síðar sem hafa sinn þjóðhöfðingja annars staðar. Nærtækasta dæmið í okkar samtíma er Kanada. Englandsdrottning hefur þó staðgengil sinn þar í landi, en því var ekki að heilsa hér á landi og færa má rök fyrir því að það hafi verið ljóður á stjórnskipun konungs- ríkisins Íslands. Enn ein bábiljan í umræðum um Íslands- söguna er að gjarnan er talað um heimsóknir „Kristjáns X. Danakonungs“ hingað til lands 1921, 1926, 1930 og 1936. Kristján konungur kom hingað vitaskuld ekki sem Dana- konungur heldur sem konungur Íslands. Alexandrína drottning varð drottning Íslands, synir þeirra prinsar af Íslandi og önnur ætt- menni konungs urðu prinsar og prinsessur af Íslandi. Hér var þó enginn konungsgarður og aldrei var smíðuð kóróna eða önnur veldis- tákn. Æðsti dómstóll betur settur í öðru ríki? Í bókinni er efni sambandslaganna útlistað vel, til að mynda það heimildarákvæði að Íslendingar stofnuðu æðsta dómstól í landinu sjálfu. Á árunum 1910–1919 var innan við 4% dóma Landsyfirréttar skotið til Hæstaréttar í Kaupmannahöfn. Þegar Ísland varð fullvalda ríki var ekki ljóst hvort stofnaður yrði íslenskur Hæstiréttur, en eins og Gunnar Þór nefnir í bókinni þá töldu ýmsir að minni trygging yrði þá fyrir réttlátum og óhlutdrægum dómum en áður. Jón Magnús- son forsætisráðherra sagði síðan í umræðum um stofnun íslensks Hæstaréttar 1919 að líkast til yrði hörgull á mönnum „sem hafa átt svo mikið við dómstörf að jafnfærir teljist mönnum þeim sem hæstarétt skipa í stóru löndunum“. Fremst í bókinni birtist hin fræga mynd af athöfninni við Stjórnarráðshúsið 1. desember 1918 sem landsmönnum hefur fram til þessa fundist drungaleg og tengt við hörmungar ársins. En eins og Gunnar bendir á er glaðasólskin þennan dag og Magnús Ólafsson ljósmyndari á í mesta basli með að taka myndina. Fjöldi fólks var saman kominn neðst í Bankastræti og sömuleiðis á Lækjartorgi.

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.