Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 97

Þjóðmál - 01.12.2018, Síða 97
ÞJÓÐMÁL Vetur 2018 95 Þessar vangaveltur eru áhugaverðar og staða Hæstaréttar í Kaupmannahöfn sem æðsti dómstóll Íslands er rannsóknarefni út af fyrir sig. Almenn sátt virðist hafa ríkt hérlendis um niðurstöður Hæstaréttar Dana. Þar sátu fimm óvilhallir dómarar í öðru landi. Vitaskuld var þetta dýrt í framkvæmd, þýða þurfti lög, reglulegerðir og lögskýringargögn. En hefði ef til vill verið farsælla fyrir þróun íslenskrar lögfræði sem fræðigreinar ef Hæstiréttur í Kaupmannahöfn hefði áfram verið æðsti dómstóll ríkisins? Alltént hefði íslensk lögfræði þar með orðið í betri tengslum við stefnur og strauma á meginlandi Evrópu. Þetta leiðir líka hugann að því að margir af helstu forystumönnum þjóðarinnar í byrjun tuttugustu aldar voru mjög alþjóðlega sinnaðir, þrátt fyrir að vera um leið miklir þjóðernissinnar, enda voru þeir sumir hverjir hámenntaðir og höfðu lengi dvalist á meginlandinu. Í þeirra huga skyldi frjálst og fullvalda Ísland verða ríki meðal ríkja, það væri órjúfanlegur hluti Evrópu og evrópskrar menningar. Því miður einangraðist Ísland á þeim áratugum sem í hönd fóru. Kannski réðu peningamálin mestu þar um. Hörmungarsaga séríslensks gjaldmiðils Gunnar Þór fjallar í lok bókarinnar um það hversu vanburðugt konungsríkið Ísland var efnahagslega. Fram að fyrri heimsstyrjöld höfðu öll Norðurlöndin haft með sér mynt- bandalag, þar sem ein dönsk króna jafngiltri einni sænskri og einni norskri. Þessar myntir hvíldu á gullfæti, líkt og aðrar myntir þess tíma og seðlar voru innleysanlegir í gulli. Við gerð sambandslaganna stóðu vonir til þess að þetta samstarf héldi og enginn sá fyrir sér að til yrði séríslensk króna. Efnahagsmálin voru þó komin í slíkt óefni sumarið 1922 að tekin var upp sérstök gengis skráning erlendra gjaldmiðla og þar með var orðin til íslensk örmynt sem læsti íslenskt efnahagslíf inni í haftakerfi með allri þeirri spillingu og sóun fjármuna sem því fylgdi. Ísland varð þróað ríki með vanþróað fjármálakerfi. Saga íslensku krónunnar er ein hörmungarsaga. Það er ágætt að halda því líka til haga í umræðum um fullveldi að sérstakur þjóðar- gjaldmiðill er ekki ein af forsendum fullveldis. Örmyntir hafa um aldaskeið átt örðugt uppdráttar. Minnstu ríkin í Evrópu hafa því nær öll hallað sér að stærri þjóðunum í þessu tilliti. Lúxemborgarar notuðust við belgískan franka og íbúar Liechtenstein eru enn með svissneskan franka. Ríki Evrópu hafa síðan á seinni árum borið gæfu til að hverfa á nýjan leik til aukins samstarfs í peningamálum með evrusamstarfinu sem hefur stóraukið viðskipti landa á milli og þar með velsæld. Fyrirmyndarrit Hinir útvöldu ætti að geta vakið Íslendinga 21. aldar til betri vitundar um eigin sögu og leitt um leið til aukins skilnings á eigin samtíma. Texti Gunnars Þór er leikandi og léttur. Hann notar gjarnan sviðsetningar og í bókinni er ein besta aldafarslýsing sem ég hef séð í íslenskum fræðiritum. Hann rekur fyrir okkur undirstöður sjálfstæðis- baráttunnar og hvað fullveldið fól í sér. Allur frágangur er til mikillar fyrirmyndar. Myndaval er eins og best verður á kosið, myndir njóta sín vel og eiga jafnan vel við textann hverju sinni. Þá er skemmtilegt hvernig sumar myndir eru látnar ná út í jaðra blaðsíðnanna en sama er gert með einstaka síður úr dagblöðum. Þessu er öllu stillt upp af stakri smekkvísi. Prófarkalestur hefur verið eins vandaður og frekast er kostur. Sagnfræðirit verða ekki öllu betur úr garði gerð. Höfundur er doktorsnemi í lögfræði og sagnfræði.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.